08.08.1913
Efri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 477 í B-deild Alþingistíðinda. (1872)

29. mál, ritsíma- og talsímakerfi Íslands

Guðjón Guðlaugsson:

Jeg verð að styðja mál þeirra hv. þm. Ísaf. (S. St.) og 3. kgkj. þm. (Stgr. L), að brtill. á þgskj, 318 sje í fylsta máta rjettmæt og ekki sje hægt að greiða atkvæði móti henni samkvæmt því, hvernig mál þetta fór hjer við 2. umræðu.

Jeg verð að líta svo á, að símalína þessi eigi meiri rjeti á sjer en Siglufjarðarsíminn. Og þó að sá sími gefi nú meiri arð, þá er hann eingöngu fyrir Norðmenn, Í og það er suðsjáanlegt, að tekjur hans eru bygðar á tómri tilviljun, þeirri tilviljun, hvort mikil síldarveiði sje á Siglufirði eða ekki.

Við 2. umr. þessa máls, tók háttv. framsm. (J. Bj.) fram, að hann áliti, að tekjur og notkun Siglufjarðarsímans gæti ekki tekið breytingum. En mjer finst það þurfa talsverða heimsku til þess, að halda því fram, að fiskiveiðar geti ekki breyzt. Við vitum það, að fyrir nokkrurri árum, þá streymdi fólkið til austfjarða, einkum til Seyðisfjarðar, vegna þess, að þar var mjög mikil síldarveiði. Nú hefur síldin horfið þaðan, og fólkið er líka farið burtu til annara staða. Svo kemur síldin á Siglufjörð og fólkið þyrptist þangað, einkum Norðmenn, en síldin getur hæglega horfið þaðan aftur og haldið sig upp að Austurlandinu, og þá fer fólkið burtu. Síldinni er ekki svo markaður bás, og það eru áraskifti að því, hvað mikið aflast. Og þegar þess er gætt ennfremur, að lína þessi er nær eingöngu gerð fyrir útlendinga, þá eru þeir líka ekki ofgóðir til þess, að greiða eitthvað af stofnkostnaði símans.

Mjer finst það vera hart, úr því þessi símalína var samþykt, að taka þá ekki aðrar símaálmur, sem eru miklu þýðingarmeiri fyrir fiskiveiðar landsins, og það er enginn efi á því, að þar er Patreksfjarðarsíminn fremstur. Þær sveitir, er þar að liggja, eiga mjög glæsilega framtíð fyrir höndum, svo framarlega sem nokkur sveit hjer á landi á framtíð í sjávarútveg.

Jeg hefði helzt kosið, að stjórnarfrumv. hefði verið samþykt óbreytt, eins og það kom frá stjórninni, og vildi ekki prjóna neitt aftan við það.

Það er leiðinlegt, að fara að rugla í lögum strax á næsta þingi, eftir að þau hafa verið samþykt; það sýnir enga festu hjá þinginu.

Atkvæðagreiðslan við síðustu umræðu er þess valdandi, að mjer dettur ekki annað í hug, en að greiða nú atkvæði með brtill. á þgskj. 318, og það, þótt jeg greiddi síðast atkvæði gegn því, að Siglufjarðarlínan yrði sett í fyrsta flokk. Það er rjett, að ósamkvæmnin, sem komst inn í símalögin við síðustu atkvæðagreiðslu, fái að sýna sig með öllum afleiðingum hennar.

Aftur á móti mun jeg ekki greiða atkvæði með brtill. á þgskj. 322. Mjer var nóg boðið og þótti naumast lengur sætt í deildinni, þegar jeg sá við síðustu umræðu, meiri hluta háttv. deildar greiða atkvæði brtill. hv. nefndar. Það er annað en skemtilegi, að heyra sífelt barinn lóminn fyrir landsmenn, ef ætlazt er til, að þeir styðji eitthvert nytsemdarfyrirtæki, sem lagt hefur verið upp í hendurnar á þeim fyrir landsfje. Jeg vil ekki verða til þess að greiða atkvæði með því, að fje sje tekið úr landssjóði til þess að svala þessari barlómssýki. Það sligar víst engan hrepp, þótt hann þurfi að sjá um starfrækslu síma hjá sjer. En auðsætt er um það, að ef landssjóður á að taki, að sjer starfrækslu allra símastöðva á landinu, þá seinkar það ekki lítið fyrir lagning nýrra síma. Þetta er hin mesta ósanngirni. Það hefur verið ákveðið, að leggja símalínur til þeirra, sem engar hafa, fyrir fje það, er sparaðist af símatekjunum. Þetta var og næsta sanngjarnt; þessir menn hafa að sínu leyti lagt fje fram í þær símalínur, sem komnar eru, og eiga því fullan rjett á, að fá símalínu sem allra fyrst. En nú á að fara að jeta upp tekjuafganginn, svo að misrjettið haldist sem lengst, og dragist von úr viti, að þessur nýju símalínur verði lagðar.

Það kemur hjer fram sem oftar, að ein syndin býður annari heim. Fyrst vill nefndin láta leggja 20–60 kr. til starfrækslunnar; nú er það komið ofan í 1050 kr. Ekki er nú festan meiri hjá henni en þetta; tómt fálm út í loftið. Við þá stöðina, sem jeg þekki bezt til, hefur með ánægju verið borgaðar 100 kr. til starfrækslunnar af hlutaðeigendum. Á þingi í fyrra fjekk jeg hjá háttv. 5. kgk. (B. Þ.) upplýsingar um það, að á Austurlandi væri sú sanngirni ríkjandi, að næstu hreppar við hrepp þann, sem símastöðin væri í, legðu fram sinn skerf til starfrækslunnar. Þegar jeg kom heim af þingi, hreyfði jeg þessu máli, og árangurinn varð sá, að tveir næstu hrepparnir við stöðina, sem jeg nefndi, lögðu fram annar 20 kr. og hinn 25 kr. Ef þessu hjeldi áfram, og tillögur nefndarinnar fengju framgang, ætti sá hreppurinn, sem langmest not hefur stöðvarinnar, ekki að þurfa að borga nema einar 5 kr.

Að endingu skal jeg enn taka það fram, að hjer er verið að beita rangindum við þá, sem borgað hafa skatt vegna símanna, borga hann enn, og munu verða að borga hann áfram, án þess að hafa haft þeirra nokkur bein not; það er verið að tefja svo og svo mikið fyrir, að þeir fái síma til sín. Eins og málinu er komið, þá greiði jeg atkvæði með brtill. á þgskj. 318, en á móti brtill. á þgskj. 322.