08.08.1913
Efri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)
31. mál, mannskaðaskýrslur og rannsókn á fundum líkum
Guðm. Björnsson, framsögum; Jeg leyfi mjer að þakka háttv. 2. þm. N.-M:
fyrir, hve vel hann hefur athugað frv., og eins fyrir það, að hann hefur tekið aftur 3. brtill.
1. brtill. við 5. gr er lítil efnisbreyting, en jeg vil þó sýna fram á, að hún er efnisbreyting. Frumvarpið gerir ráð fyrir; að það geti hugsazt, að prestur verði beðinn að jarða lík en sje dulinn þess, að líkið hafi fundizt. Það eru auðvitað litlar líkur til þess, að þetta beri við, en það er þó engan veginn útilokað. Samt vil eg ekki segja, að það sje skemd á frv., þó brtill. verði samþykt.
Um 2. brtill. vil jeg lýsa því yfir fyrir hönd nefndarinnar, að hún aðhyllist hana og mælir með því, að hún verði samþykt. Það er alveg rjett, sem háttv. þm. sagði, að það getur komið fyrir, að hentugra sje,
þegar lík finst á jöklum uppi, að flytja það í aðra sveit, en þá næstu.