16.07.1913
Neðri deild: 12. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í C-deild Alþingistíðinda. (191)
14. mál, vitagjald
Matthías Ólafsson:
Það er ekki að undra að þetta frumv. hefir komið fram. Menn vissu það hér í fyrra, að ýmsir Reykvíkingar voru að fara fram á það við þingmenn, að létta vitagjaldinu af skemtiferðaskipunum. Eg Veit nú ekki, hverju aðrir þingmenn hafa svarað til þess, eg eg sagði, þegar þetta var nefnt við mig, að eg myndi verða á móti því, og eins er eg enn. Þessi skemtiferðaskip eru ekkert annað en farmskip, sem flytja lifandi kjöt, gamalt eða nýtt; þó er það mest gamalt, að minsta kosti einustu farmarnir. Eg sé því ekki ástæðu til að skoða þessi skip öðruvísi en farmskip. — Því hefir verið haldið fram, að þessi skip myndu hætta að koma hingað, ef vitagjaldið héldist eins og nú er. En eg fæ ekki betur séð en að þetta sé að eins einfeldnisleg hótun, því að þótt fargjald hækkaði eitthvað lítilsháttar, sem ekki getur orðið meira en svo sem 6 kr. á mann, þá myndu víst engir láta þessa lítilfjörlegu hækkun aftra sér frá slíku ferðalagi. Þar sem talað er um, að undanþiggja þessi skip vitagjaldi á tímabilinu frá 14. Maí til 15. Ágúst, þá er það sama sem að undanþiggja þau alt árið. Þeir menn, sem með þessum skipum ferðast, koma hingað aðallega eða eingöngu til þess að sjá miðnætursólina, og er þeirra því ekki von á öðrum tímum árs. Og þó að skipin hafi engin not af vitunum, þar sem þeir loga ekki um þennan árstíma, þá þurfum við þó að borga vitavörðunum og sjá um viðhald á vitunum alveg eins fyrir því. Vitaskuld er vitagjald mun hærra hjá okkur en í öðrum löndum, en því veldur löng og víða hættuleg strandlengja. Og betra er okkur að heimta hátt vitagjald af útlendum og innlendum skipum, heldur en að þurfa að búa við slæma og ófullnægjandi vita.
Mér finst fremur vera ástæða til að athuga, hvort ekki sé rétt að gera undantekningu með íslenzka botnvörpunga, sem oft fara milli landa. Það er satt, að útgerðarmenn þeirra hafa ekki kvartað enn þá, en þeir eru ekki svo skapi farnir, að þeir kveini og kvarti þó ekki gangi alt að óskum, og segi eg þetta þeim til lofs, enda er ekki síður ástæða til að sýna þeim sanngirni og réttlæti, þó þeir séu ekki sí-kveinanndi. Eg er viss um að þeir myndu ekki kvarta þó við legðum á þá óréttlátt gjald.
Eg vil ekki að þessum útlendu mannflutningaskipum sé gefin nokkur ívilnun. Ef þau flyttu eitthvað í lestinni, hvað lítið sem væri, og flytti það hér á land, þá væru þau skyldug til að borga. Hitt er annað mál, að stjórninni sé gefin heimild til að gera undantekningu með skemtiskip, sem engan farm flytja og ekkert fargjald taka fyrir farþega. Þetta þyrfti ekki að vera föst regla, og eg álit að naumast sé gerandi ráð fyrir að slík heimild yrði misbrúkuð af stjórninni.