15.08.1913
Efri deild: 30. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (1922)
73. mál, skoðun á síld
Björn Þorláksson, framsögumaður:
Á þessu frv. stendur þannig, að á þinginu 1911 voru samin lögum, að skipa skyldi menn til þess, að skoða síld og meta gæði hennar, og var þetta gert í því skyni, að koma síldinni í hærra og fastara verð en verið hefur áður á þessari vörutegund. Þar sem þá var hjer um nýmæli að ræða, var það ákveðið, að þau skyldu að eins ná yfir nokkurn hluta landsins eða frá Horni til Langaness, og að þau skyldu aðeins gilda til loka þessa árs, sem nú er að líða. Lögin áttu því að vera reynslulög. Sú reynsla hefur verið á þann veg, að þau hafa gefizt vel, og óskir hafa komið fram um, að þau væru framlengd og látin ná til alls landsins. Í þessu eru fólgnar aðalbreytingarnar á frv. En auk þeirra hefur einnig verið gerð sú breyting á núgildandi lögum, að í stað þess að áður voru tveir síldarmatsmenn, og sat annar þeirra á Akureyri en hinn á Siglufirði. er nú ákveðið, að stjórnin skuli kveða á um aðsetursstað síldarmatsmanna. Ennfremur hefur verið bætt inn viðauka um, að yfirmatsmaður megi leyfa skoðun á síld, sem ekki hefur verið ætluð til útflutnings, og að síðan megi senda það út af henni, sem til þess reynist hæft. Það kemur oft fyrir, þegar mikið veiðist af síld í einu, að hún er svo gölluð, að hún er ekki öll hæf til útflutnings, en ef hún er skoðuð, má þó velja nokkuð úr, sem flytja má út. Aðrar breytingar, sem gerðar hafa verið við frv., eru mjög lítilfjörlegar, og ein eða tvær breytingar eru að eins til þess, að skýra ákvæði í lögunum, sem ógreinileg þóttu. Nefndin vill því ráða háttv. deild til þess að samþykkja frv. óbreytt, eins og það kom frá neðri deild.