16.08.1913
Efri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (1932)

3. mál, fjáraukalög 1912 og 1913

Sigurður Eggerz:

Jeg tók það fram í fyrstu ræðu minni, að nauðsyn væri á að endurreisa pósthúsið og kastaði fram spurningunni um það, hvort kostnaðaráætlun fyrir byggingunni lægi fyrir. En jeg get eigi sjeð, að hjer liggi fyrir nema áætlun um viðbót. Stjórnin er sjálfri sjer samkvæm. Þar sem hún fer aðeins fram á viðbót, en nefndin er það ekki, þar sem hún vill veita fje annaðhvort til viðbótar eða til að byggja nýtt pósthús. Þessi fjárveiting, sem farið er fram á, getur verið nóg til viðauka, en alls ekki til pósthússbyggingar, og það er eigi rjett að spara nokkrar krónur í svip, ef strax þarf að framhalda byggingunni með auknum fjárframlögum.

Að því er snertir eftirgjöf á tillaginu til Garðsankasímans, þá er alls eigi rjett, að mynda neitt fordæmi hjer, því hjer stendur alveg sjertaklega á. Það hefur verið gefið undir fótinn með þessa endurgreiðslu, og með hana fyrir augum hefur tillagið til Víkursímans verið hækkað. Þá mega og þingin ekki fyrirlíta hvert annars vilja og gerðir. Mjer virðist sem þingið í fyrra hafi lofað þessari endurgreiðslu, og þá er skylda þessa þings að uppfylla það loforð; og held jeg þessu ekki fram af hreppapólitík.

Að því, er snertir athugun háttv. frsm. (Stgr. J.) viðvíkjandi vörutollinum, þá álit jeg, að það sje eigi rjett hjá honum. Innanríkisráðherrann getur alls eigi gefið þannig löguð loforð, að alþingi sje skyldugt að uppfylla þan, og virðist það fullljóst. Það nægir eigi, að visa til 6. gr. stöðulaganna í þessu efni, því hjer er ekki lögð sjerstök gjöld á póstflutning, en aðeins er hjer að ræða um almenn tolllög fyrir Ísland. Og auk þess mun „Sameinaða fjelagið“ geta hagað svo kolakaupum sínum, að kaupa þau eigi hjer, og hvernig á fjelagið þar að auki að sanna, eða hvaða skilríki eru heimtuð fyrir því, að það hafi keypt svo og svo mikil kol hjer. Afskifti innanríkisráðherrans af þessu máli hafa gert það að verkum, að við verðum að sækja „Sameinaða fjelagið“, í stað þess, að það sækti oss, sem eðlilegast var. En hafi innanríkisráðherrann gert þetta í samráði við hæstvirtan ráðherra vorn, þá er alt öðru máli að gegna. Um það þarf upplýsinga hæstv. ráðherra, en hann er hjer ekki viðstaddur.