16.08.1913
Efri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (1939)
3. mál, fjáraukalög 1912 og 1913
Jón Jónatansson:
Mjer er sama, þó að jeg tali mig dauðan, meðan þessi þögn er hjer í deildinni. Jeg ætla ekki að þrátta við hina hv. nefnd um þá meginreglu, er hún hygst að skapa með brtill. sinni um endurgreiðslu á símaláninu. Það er með öllu gagnslaust. En það var eitt atriði í ræðu hv. frsm. (Stgr. J.), er jeg vildi mótmæla. Hann sagði, að Árnessýsla yrði ekki harðara úti enn önnur hjeruð. Það var aðal röksemd hans. Jeg fæ ekki sjeð, að ósanngirni eða órjettlæti verði rjettmætt, þó að því sje beitt annarsstaðar.
Hv. frsm. og hv. þm. N.-M. (E. J), sögðu, að það væri ósannað, að línan hefði kostað minna, en hermt væri í skýrslunum, en hitt er líka ósannað, að hún hafi kostað svo mikið. Það er eftir að sýna það með skýrum tölum, og sundurliðuðum reikningum.
Þetta vildi jeg taka fram. Að öðru leyti sje jeg ekki ástæðu til að lala meira um frv. Jeg er samþykkur hv. 6, kgk. þm.
(G. B.) um það, sem hann hefur sagt um pósthúsið. Það leikur alt í lausu lofti, sem ráðgert er um það, og það vantar skýrar og ábyggilegar rannsóknir á því máli. Eins og málið liggur nú fyrir, er þessi fjárveiting alveg út í loftið, og jeg mun ekki greiða henni atkvæði ; það er ekki rjett, að veita fje til að byrja á byggingu, sem enginn veit, hvað kosta muni, ef fullnægjandi ætti að vera.