18.08.1913
Efri deild: 32. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í B-deild Alþingistíðinda. (1958)

21. mál, íslenskur sérfáni

Eiríkur Briem:

Jeg vildi aðeins leyfa mjer að leggja til, að málinu væri vísað til nefndar, og af því að allmikill skoðanamunur hefur komið fram um málið í Nd., og slíkt hið sama mun eiga sjer stað hjer í deildinni, og hinsvegar æskilegt, að þessi skoðanamunur komi fram í nefndinni, þá leyfi jeg mjer að stinga upp á fimm manna nefnd.