20.08.1913
Efri deild: 34. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (1977)
36. mál, nafnabreytingar og ný nöfn á býlum
Einar Jónsson:
Jeg hef leyft mjer að koma fram með brtill. á þgskj. 491 við 6. gr. Þessar brtill. eiga aðeins að vera til skýringar á greininni, og það getur vel verið, að þeirra þurfi ekki með, en mjer þykir rjettara, að þær komi hjer til umtals. 3 málsgr. 6. gr. byrjar á þessum orðum: „Nú vill maður taka upp nýtt nafn á býli, sem ekkert nafn hefur í jarðabókinni, eða húsi eða þurrabúð í kaupstað. eða sjóþorpi.“ Jeg bjóst við því, að hjer væri átt við það, ef menn vilja taka upp nýtt nafn á húsi eða þurrabúð, sem ekkert nafn hefur haft áður, og þykir mjer rjettara, að það sje tekið skýrt fram í frv., ef sú er meiningin, og legg jeg því til, að bætt sje við þessum orðum: „er eigi hefur áður haft sjerstakt nafn“. Mjer finst eigi rjett, að leyfa mönnum að hringla til um nöfn á húsum og þurrabúðum, eins og þeir vilja, fremur en nöfn á býlum, því að slíkt getur valdið óþægindum, og því þarf að taka þetta fram í frv. Í 6. gr. er ennfremur talað um að afhenda skuli sýslumanni til þinglesturs yfirlýsingar um nafn býlisins eða hússins, en ekkert er talað um borgun fyrir það. Jeg hygg, að sú sje meiningin í frv., að að eins skuli greiða þinglestursgjald, þegar þinglýst er nýju nafni á býli, sem ekkert nafn hefur haft áður, en mjer þykir rjett ara, að það sje tekið beint fram í frv., að fyrir slíka nafntöku skuli ekkert gjald greiða nema þinglestursgjald. Þessar breytingar, sem jeg hef farið fram á, eru því, eins og jeg þegar hef tekið fram, aðeins til skýringar á frv. Að vísu kosta þær það, að málið verður að fara til Nd. að nýju, og ef lögfræðingar hjer í deildinni halda, að þessar breytingar sjeu óþarfar, þá mun jeg ekki halda þeim fast fram.