21.08.1913
Efri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (1992)
3. mál, fjáraukalög 1912 og 1913
Steingrímur Jónsson, framsögumaður; Jeg vil að eins lýsa því yfir, að nefndin tekur aftur 9. brtill. á þgskj. 497, en aðhyllist aftur brtill. undir staflið b og c á þgskj. 501.
Hvað brtill. á þgskj. 501 staflið a viðvíkur, þá hefur nefndin ekki tekið neina afstöðu til hennar, en hver einstakur nefndarmaður er þar óbundinn að öllu leyti.