21.08.1913
Efri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (1997)
94. mál, kosningar til Alþingis
Einar Jónsson:
Mjer er það ekki vel ljóst, hvernig á að koma saman 1. og 2. brtill. hv. nefndar. Í 1. brtill. stendur, að oddviti yfirkjörstjórnar skuli ekki víkja sæti úr kjörstjórninni, „fyr en atkvæða kassar eru opnaðir og atkvæði talin“. En í 2. brtill. stendur: „Sýslumaður eða bæjarfógeti er oddviti yfirkjörstjórnar. Ef hann er frambjóðandi, skal hann þó víkja sæti úr yfirkjörstjórninni „meðan atkvæðakassarnir eru opnaðir og atkvæði talin.“ Jeg sje ekki betur, en hjer sje mótsögn, þar sem í fyrri brtill. er gert ráð fyrir að oddviti víki úr sæti í kjörstjórninni ekki fyr en atkvæðakassar eru opnaðir og atkvæði talin, en í hinni siðari meðan atkvæðakassar eru opnaðir og atkvæði talin. Mjer er ekki ljóst, hvernig h. nefnd hefur hugsað sjer þetta, og þætti vænt um að fá skýringu á því.
Í 3. brtill. nefndarinnar er talað um fyrirkomulagið á kjörseðlunum. Þar er gert ráð fyrir, að í svarta borðanum sjeu hvítar kringlur, en alstaðar annarsstaðar í frv. eru þessar kringlur nefndar reitir. Það þarf því að breyta öðruhvoru, og hafa annaðhvort orðið allstaðar í frv.
Ef svo er, sem mjer sýnist, að ósamræmi sje á milli 1. og 2. brtill. h. nefndar og sömuleiðis 3. brtill. og orðalags frv. annarsstaðar, þá vildi jeg skjóta því til h. nefndar og h. forseta, hvort ekki mundi rjettara, að taka málið út af dagskrá og leiðrjetta þetta, sem jeg hef minst á.