21.08.1913
Efri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 636 í B-deild Alþingistíðinda. (1998)
94. mál, kosningar til Alþingis
Guðjón Guðlaugsson:
Jeg sakna í frv. þetta eins ákvæðis, sem jeg bjóst við, að þar mundi verða sett. Það er að segja samskonar ákvæðis, sem er í frumv. um kosningar í bæjarstjórnir, um að kjörseðlarnir skuli vera úr góðum og þykkum pappír, og að þeir skuli vera þannig saman brotnir, að auðvelt sje að leggja þá aftur í sama brot, er þeir eru notaðir. Þessa ákvæðis sakna jeg, og sömuleiðis annars ákvæðis úr sama frv., er segir, að þegar kjósandi hafi sett merki við bókstaf þess lista á kjörseðlinum, sem hann vill atkvæði gefa, þá skuli hann brjóta seðilinn saman í sömu brot, sem hann var í, þegar hann tók við honum. Það gengur yfir mig, að framhjá þessu skuli hafa verið gengið af þeim, sem um frumv. hafa fjallað, því að reynslan hefur sýnt, að langmest af mistökum við kosningar hafa stafað af því, að seðlarnir hafa ekki verið brotnir saman sem vera á. Þetta atriði hefur reynzt miklu þýðingarmeira en hitt, þótt einhver hafi verið svo skjálfhentur, að hann hafi ekki gert krossinn keiprjettan. Jeg vil skjóta því til háttv. nefndar, hvort henni sýnist ekki rjett að taka þetta atriði til athugunar til 3. umr.
Jeg er ekki viss um, að jeg geti verið samþykkur 6. gr. frv., nje heldur tillögum nefndarinnar, þar sem gert er ráð fyrir, að kosningarathöfnin eigi að standa yfir 6 stundir, í stað þess sem í kosningarlögunum er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslu megi slíta eftir tvær stundir frá því hún hófst, ef ekki gefa sig þá fleiri fram. Mjer sýnist það þýðingarlaust, að fastákveða tímann svona langan. Aðalatriðið er að ákveða einhvern ofurlítinn biðtíma eftir að hætt er að greiða atkvæði; með því er það trygt, að allir, sem á kjörstaðnum eru, geti neytt atkvæðisrjettar síns. Þess er að gæta, að kosningarnar fara að jafnaði fram á haustin, þegar dagur er orðinn stuttur, og getur þessi bið fram í myrkur orðið býsna óþægileg fyrir kjörstjórnina, sem verður að híma þar von úr viti, sjálfsagt oftast svo og svo lengi aðgerðalaus. Jeg held þessi langa bið geti jafnvel leitt til siðspillingar. Það getur vel kormið fyrir, þegar kosning er úti, og menn þykjast sjá fyrir kosningaúrslitin, að þá sje farið að senda út um sveitina, til að smala saman nýjum kjósendum, þegar tíminn er svo yfirfljótanlegur til þess. Jeg þekki dæmi til þess, að við hreppsnefndarkosningu var sent þrisvar sinnum af stað eftir kjósendum, sem heima sátu; þá fyrst hafðist það fram, sem fyrir var barizt. Þetta kalla jeg siðspillandi, og því tel jeg breytinguna fremur til skaða en gagns.
Það herðir á mönnum að mæta í tíma, ef þeir víta, að tíminn er ekki mjög langur, sem atkvæðagreiðslan stendur yfir. Og það hljóta allir að sjá, að það er þýðingarlaust, að vera að biða klukkutímum saman eftir því, að ljúka kosningarathöfninni, þótt kjörstjórn viti það með vissu, að allir hafi kosið, sem á nokkurn hátt má vænta að kjósa muni. Aftur getur það komið fyrir, að 6 stundir sjeu of stuttur tími fyrir alla til að kjósa, eins og hann getur verið þrefalt lengri eða meira en þörf er á.
Hvernig sem þetta er skoðað, er fátt, sem mælir með breytingunni, en margt á móti.