21.08.1913
Efri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (1999)

94. mál, kosningar til Alþingis

Jón Jónatansson:

Það voru tvö atriði, sem jeg ætlaði að minnast á. Um annað þeirra, brotið á seðlunum, hefur háttv. þm. Strand. (G. G.) talað, og er jeg honum þar samdóma. Það hefði verið ástæða til þess, að nefndin hefði fyrst og fremst tekið þetta atriði til athugunar, og reynt að breyta til bóta, því það eru einmitt ákvæði kosningarlaganna um brotið á seðlunum, sem valdið hafa mestum ágreiningi, vafa og vandræðum, og vona jeg, að háttvirt nefnd taki þetta til nánari athugunar til 3. umr. og taki upp í frv. svipuð ákvæði um þetta, og það, sem nú stendur í frv. um bæjarstjórnarkosningar, sem nú er til meðferðar í þinginu.

En svo er annað atriði, sem jeg vil fara nokkrum orðum um. Bæði frv. og háttv. nefnd halda óbreyttu hinu meiningarlausa ákvæði 26. gr. kosningarlaganna um það, að sje kjörþing haldið annarsstaðar en á þingstað hreppsins, þá skuli yfirkjörstjórnin auglýsa það á kirkjustöðum hreppsins 8 dögum á undan kjörfundi. Það er svo mikilsvert atriði fyrir kjósendur, að fá að vita í tæka tíð, hvar kjósa eigi, að það þarf að búa miklu tryggilegar um, að svo geti orðið, en hjer er gert. Það er eins og gert sje ráð fyrir, að messað sje á öllum kirkjustöðum á hverjum sunnudegi, en bæði er það, að því nær allir prestar hafa fleiri en einni kirkju að þjóna, sumir fjórum eða þaðan af fleirum, og auk þess verða ekki svo ósjaldan messuföll. Og enn er á það að lita, hvernig ætti að fara að, ef enginn kirkjustaður væri í hreppnum. Þessar bendingar sýna, hve ófullnægjandi þessi auglýsingaraðferð er, og þetta ákvæði er með öllu gagnslaust og blátt áfram hlægilegt; þyrfti því að finna betri aðferð; vona jeg, að nefndin taki: þetta atriði til athugunar. Jeg geri ráð fyrir, að nefndin hafi athugað kosningarlögin, en búast megi þó við, að ýmislegt sje fleira í þeim lögum, sem ástæða sje til að breyta, úr því verið er að breyta þeim hvort sem er, en jeg læt vera að fara lengra út í það að þessu sinni, þar sem jeg geri ráð fyrir, að háttv. nefnd muni en að nýju taka þau til skoðunar, áður en 3. umr. verður, og koma þá með nýjar brtill.