21.08.1913
Efri deild: 35. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í B-deild Alþingistíðinda. (2015)

109. mál, forðagæsla

Jósef Björnsson:

Jeg vil taka það fram gagnv. 6. kgk., að jeg hef ekkert tilefni gefið til þeirra ummæla hans, að jeg væri að forsvara sveitunga mína. Jeg var alls ekki að reyna að bera blak af þeim, nefndi þá ekki á nafn. Ræða mín beindist heldur ekki á móti nefndarálitinu, heldur gegn ýmsum ummælum hjer í deildinni, sem mjer hafa fundizt fullsvæsin. Hinn hv. þm. sagði, að menn kendu oft skitu, gigt o. fl. um það, sem hornum væri að kenna. En ætli, að það geti ekki verið, að mennirnir segi satt ? Jeg skal taka eitt dæmi úr mínu hjeraði. Einn bezti bóndinn þar, sem fer ágætlega með fje sitt, misti síðastl. vetur töluverðan hluta af ám sínum úr einhvers konar lungnaveiki. Þetta var allsnemma vetrar, og heybirgðir yfirfljótanlegar. Um veikina var ráðgast við dýralækni, og við ærnar reynt ýmislegt, en þær dóu samt þrátt fyrir gnægð heyja og góða umönnun. Það eru líkindi til, að ærnar hafi verið orðnar magrar um þær mundir að þær drápust, en ekki var það af heyskorti, og fjarstæða væri að telja slíkt horfelli. Annað dæmi skal jeg nefna. Eftir að jeg stóð upp og hafði tekið til máls, er mjer rjettur seðill sá, er jeg held á, og á hann er ritað: Á Möðruvöllum drápust sauðir á annan vetur frá nógu og góðu heyi úr lungnaormaveiki fyrir miðjan vetur. Hv. forseti þessarar deildar, sem þá bjó þar, hafði orð fyrir að ala fje sitt manna bezt. Væri nú nokkurt vit að kalla slíkt horfelli? Mörg fleiri slík dæmi gæti jeg nefnt. Það, sem jeg vildi benda á með ræðu minni, var þetta: að skepnufellir stafaði ekki alt af af fóðurskorti. Það er satt, að maður á ekki að gera ástandið of bjart, en maður á ekki heldur að gera það of svart. Annars skal jeg taka það fram, að jeg mun styðja brtill. hv. þm. V.- Skf„ af því að jeg veit ekki, hvort hallærisstjórnin kemst á laggirnar. En þetta frv. á að geta staðið, hvað sem öðrum frumv. líður, sem á ferðinni eru á þinginu.