22.08.1913
Efri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (2018)

27. mál, vatnsveitingar

Þórarinn Jónsson framsögumaður:

Frumvarp það, sem hjer liggur fyrir, er nú komið aftur frá háttvirtri neðri deild, og hafa þar verið gerðar á því nokkrar breytingar, sem flestar skifta ekki miklu máli, en eigi getur nefndin álitið, að þær sjeu að neinu leyti til bóta á frumvarpinu. Fyrsta breytingin er sú, að í 2. gr. hefur verið slept þessum orðum, „enda verði henni (þ. e. vatnsveitingunni) ekki breytt nema með meiri kostnaði, en skaði gjörðarbeiðanda telst“. Það, sem hjer vakti fyrir nefndinni, var, að hugsazt gæti, að einhver veitti vatni af sínu landi inn á annars manns land, einungis í því skyni að gera honum miska eða óþægindi, þótt hann gæti veitt vatninu annað, sjer að meinalausu, og vildi þá nefndin, að sá, er fyrir slíku verður, gæti fengið það leiðrjett. En þar eð neðri deild hefur felt þetta burtu, vill nefndin sætta sig við, að það falli niður, því að hún treystir því, að úttektarmenn meti sanngjarnar bætur fyrir slíkt, sem hjer er um að ræða. Við 3. gr. hefur verið gjörð sú breyting, að í staðinn fyrir „hæfilegt endurgjald“ hefur verið sett: „hæfileg þóknun“. Nefndin lítur svo á, að í orðinu „þóknun“ liggi önnur merking en í orðinu „endurgjald“, því að þóknun eigi ekki við fullkomnar bætur, heldur aðeins við bætur að nokkrum hluta, og telur hún því þessa breytingu fremur til skaða, en þó getur hún sætt sig við, að við svo búið standi, til þess að samkomulag náist fremur við neðri deild. Í 6. gr., þar sem talað er um, að krefjast megi landskifta, ef vatni er veitt á óskift land, hefur verið slept úr þessum orðum: „eða 1önd, sem ekki er skift til eignar, svo sannanlegt sje“. Ef þessari eftirsetningu er slept, þá á greinin einungis við lönd, sem sanna má að eigi hefur verið skift, en skifti geta líka verið til afnota, þó ekki sjeu til eignar. En þar eð frumvarp til landskiftalaga nær væntanlega fram að ganga á þessu þingi, álítur nefndin, að þetta skifti litlu máli, og getur hún því fallizt á, að þessu verði slept ár frumvarpinu. Þá hefur ennfremur verið gjörð sú breyting á 6. gr., að í staðinn fyrir: „skiftin skulu miðuð við jarðarmagn“ hefur verið sett: „skiftin skulu miðuð við stærð jarðanna eða jarðarpartanna eftir jarðamatinu“. Þessa breytingu getur nefndin sætt sig við, þar eð hún hyggur, að hún muni eigi verða til verulegs ógagns, enda þótt í jarðamatinu sje mjög mikið ósamræmi, og er það í trausti til úttektarmanna. Á 17. gr. hefur verið gjörð sú breyting, að í stað þess að leiguliða var heimilað í endurgjaldskostnað alt að því tólf sinnum meira en eftirgjaldshækkuninni nemur, hefur verið sett fimtánfalt. Þetta hyggur nefndin að sjaldan muni koma til greina, og getur hún því sætt sig við þessa breytingu. Þá kemur 18. gr. Þar er aðalbreytingin, sem gjörð hefur verið á frumvarpinu í neðri deild, og liggur hún í því, að greinin hefur verið feld burtu og ný grein verið sett í staðinn. Greinin hljóðaði um stóráveitu og var þess efnis, að ef hvorki landsdrottinn nje leiguliði vildu greiða áveitukostnað, þá mætti taka jörðina eignarnámi gegn fullu endurgjaldi. Í stað þessa hefur verið sett það ákvæði, að áveitukostnað skuli mega taka lögtaki hjá leiguliða, þar til hann er orðinn öreigi, og ganga þá að eiganda með málssókn. Þetta teljum vjer mjög óheppilegt. Nefndin hyggur, að þegar um fjelagskap er að ræða, sje hugsunarhætti manna yfirleitt svo farið, að flestir vilji hafa sem mestan hagnað af fjelagsskapnum, en komast hjá að leggja nema sem minst af mörkum sjálfir. En til þess að binda fjelagsskapinn traust saman, álítur nefndin nauðsynlegt, að þeir beri sjálfir mestan kostnaðinn, sem mestan hagnað hafa af fyrirtækinu, og álitur hún því, að það. að láta leiguliða eða landsdrottinn greiða kostnaðinn, þótt þeir vilji eigi, og heimila, að þetta sje tekið lögtaki eða ná því inn með dómi, sje miklum mun lakara en sú leið, sem efri deild vildi fara, og getur hún því eigi fallizt á þetta atriði af þeim ástæðum, sem fram eru teknar í framhaldsnefndaráliti nefndarinnar, en leyfir sjer að ráða háttvirtri deild til þess að fella 18. gr. niður en samþykkja í hennar stað nýja grein, eða samhljóða grein og áður var í frumvarpinu, og háttv. deild samþ. þá með miklum atkvæðamun. Væntum vjer, að svo fari enn.

Þar eð eigi tóku fleiri til máls, var gengið til atkvæða, og var breytingartillaga nefndarinnar á þingskj. 479 við 18. gr. samþ. með 9 samhlj. atkvæðum.

Frumv. þannig breytt var því næst samþykt með 9 samhlj. atkv. og endursent neðri deild.