22.08.1913
Efri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

101. mál, sala á kirkjujörðinni Undirfelli

Þórarinn Jónsson framsögum.:

Jeg ætla ekki að fara mörgum orðum um þetta mál, því nefndarálitið ber með sjer, hver skoðun nefndarinnar er á því, en hún hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að vísa beri málinu til stjórnarinnar, og byggir hún þetta á því, að málið er eigi svo vel undirbúið sem skyldi. Máli þessu er þannig varið, að ábúandinn á Undirfelli hefur farið fram á, að fá keypta þá jörð, og var samþ. á sýslunefndarfundi, að selja honum jörðina, og var hún síðan metin til peningaverðs ásamt hjáleigunni Snæringsstöðum, en þá jörð hafði ábúandinn á Undirfelli ekki farið fram á að kaupa, er hann bað um kaup á Undirfelli. Síðan hefur það upplýzt af skjölum, sem fylgja málinu, að Snæringsstaðir hafa ávalt verið sjerstök jörð og það eigi svo lítið kot, því hún er talin geta framfleytt um 130 sauðfjár auk nauðsynlegra kúa og hrossa. Og þó að jörð þessi hafi verið virt með Undirfelli, gefi það ekki tilefni til að selja hana með, þar sem hvorki í sýslunefndargerð nje skipunarbrjefi sýslumanns hefur verið beðið um kaup á henni, eða virðingarmönnum falið að virða hana. Álítur nefndin, að eigi beri að selja Snæringsstaði með, þótt Undirfell sé selt. Þær ástæður, sem færðar hafa verið fram á móti því, að Undirfell verði selt eru tvær: í fyrsta lagi að jörðin muni ef til vill í framtiðinni verða notuð sem prestssetur, og í öðru lagi, að hún muni vera hentug sem skólasetur í Áshreppi, og var um þetta leitað álits þeirra manna, er bezta þekkingu höfðu á þessum efnum. Hinu fyrra svaraði biskup á þá leið, að eigi væri ástæða til þess, að halda í jörðina til þess, að varðveita hana sem prestssetur. Um hið síðarnefnda hafa orðið nokkrar deilur. Nefndinni þykir ekki líklegt, að heimavistarskólar fyrir börn verði settir upp í sveitum í nálægri framtið, en fyrir heimangönguskóla er jörðin ekki heppleg nema fyrir nokkurn hluta sveitarinnar, enda hefur verið gjörð skólastofa á öðrum stað í hreppnum. Nefndin hefur nú leitað álits fræðslumálastjórans um þetta efni, og telur hann eigi líklegt, að Undirfell verði notað sem skólajörð, en Snæringsstaði telur hann vel til þess fallna, nægilega stóra handa kennaranum til ábúðar og að öllu heppilegri en Undirfell. Og álítur því nefndin, að undanskilja beri þá jörð frá sölunni. Að því er gjörðir sýslunefndarinnar snertir, þá lítur nefndin svo á, að atkvæðagreiðsla hennar 1912 verði að skoðast ábyggileg og þannig telja aðeins 2 atkv. á móti sölunni á Undirfelli, sjerstaklega þar sem þeir 2, sem þá greiddu atkv. á móti sölunni, ljetu bóka mótmæli sín og fengu eigi þá 2, er ekki greiddu atkv., til þess að skrifa undir mótmælin með sjer. Nefndin álítur því, að óþarft sje, að málið gangi til sýslunefndarinnar að nýju, og álita beri, að hún hafi samþykt söluna á Undirfelli, og að hin síðari atkvæðagreiðsla hafi verið óviðeigandi. En um Snæringsstaði er það að segja, eins og áður er fram tekið, að þar sem þeir hafa verið taldir sjerstök jörð með greinilega afmörkuðu túni, og þeir þar að auki eru eigi nefndir í beiðni ábúandans á Undirfelli, álítur nefndin, að eigi beri að selja þá með þeirri jörð, og leyfir hún sjer því að ráða háttv. deild til þess að vísa máli þessu til stjórnarinnar til framkvæmda.

Var þá umræðum lokið og gengið til atkvæða, og var málinn vísað til stjórnarinnar með 53 samhlj. atkv.