22.08.1913
Efri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í B-deild Alþingistíðinda. (2022)
43. mál, samþykktir um hringnótaveiði
Júlíus Havsteen, framsögumaður minni hlutans:
Jeg ætla að eins að segja örfá orð máli mínu til stuðnings, þótt það sje varla nauðsynlegt, því að jeg hef lýst skoðun minni á þessu máli í ágreiningsatkvæði mínu. Að því, er snertir fiskiveiðasamþyktir þær, sem gerðar hafa verið, einkum við sunnanverðan Faxaflóa siðan árið 1877, þá er óhætt að segja, að þær hafa undantekningarlaust reynzt illa, ávalt gert meiri skaða en gagn. Og þar sem hjer er um það að ræða, að gera takmarkanir um annan aðalatvinnuveg landsmanna, finst mjer varhugavert, að þingið sleppi löggjafarvaldi sínu um þetta í hendur sýslunefndum, og yfirleitt virðist mjer, að þingið ætti að fara mjög varlega í að afsala sjer nokkru af valdi sínu. En að því er sjerstaklega snertir hringnótaveiði við Eyjafjörð, þá getur hún ekki gert verulegan skaða fremur en hvalveiðarnar, sem jeg get ekki sjeð að sjeu að neinu leyti háskalegar, þótt margir sjeu mjög hræddir við, að þær spilli fiskigöngum. Ennfremur er það rangt gagnvart þeim mönnum, sem lagt hafa mikið í kostnað til þess að útvega sjer herpinætur, að hindra það, að þeir geti notað sjer þessi veiðarfæri eins og þeim hentar bezt. Þar að auki er það einungis partur af því svæði, sem frv. þetta á að gilda fyrir, sem hefur óskað eftir lögum um þetta efni. Það er hvorki meira nje minna en Akureyri með 2000 íbúum, sem er mótfallin þessu frumvarpi, svo að menn geta ekki sagt, að einróma raddir manna á þessu svæði, óski eftir lögunum. (Steingr, Jónsson: Þá komast samþyktirnar ekki á). Jú, víst því að hinir geta borið þá ofurliða í atkvæðagreiðslu. Af þessum ástæðum, sem jeg nú hef tekið fram. vil jeg leyfa mjer að ráða háttv. deild til þess að fella frv. þetta.