16.07.1913
Neðri deild: 12. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í C-deild Alþingistíðinda. (203)

12. mál, tollalagabreyting

Jón Ólafsson:

Herra forseti ! Það sem kemur mér til að standa upp, er breyt. till. nefndarinnar, er hún lætur sykraða ávexti koma í stað sykurgervingar af ávöxtum.

Eg vildi gjarna forðast, að það þurfi að semja nýtt “karamellu„ -frumvarp á næsta þingi. Vil eg því skjóta til nefndarinnar, hvort hún vilji ekki lofa báðum orðunum að standa.

Hér í verzlunum fást ýmis konar sætindi, sem kölluð eru “sykraðir ávextir„, en það fást líka aðrar tegundir sætinda, sem að réttu lagi eru kallaðar “sykurgervingar af ávöxtum„.

Vil eg því leggja til, að bökðum orðunum verði haldið, til þess að allur misskilningur sé útilokaður.