25.08.1913
Efri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (2032)
57. mál, girðingar
Eiríkur Briem:
7. brtl. h. n. fer fram á að bæta inn í frv. nýrri grein. Jeg tel breyting h. n, mikið góða í sjálfu sér, og á góðum rökum bygða. En jeg álít, að ákvæðið um, að vírinn í girðingunni skuli hvergi vera minna en 75 sentimetra frá jörð, óþarft til að ná þeim tilgangi, sem nefndin ætlast til að það nái, og geti jafnvel gert girðinguna gagnslitla, Það mun vera nóg að hafa vírinn álnarhátt frá jörðu, til þess að sauðfje geti gengið undir hann, án þess að meiðast. Það er ekki há girðing, sem sauðkindin getur smogið undir. Sje vírinn svo hátt frá jörðu, sem nefndin leggur til, þá er hætt við, að stórgripir smjúgi undir hana, einkum nautgripir. Jeg vil því skjóta því til h. n., hvort hún vilji ekki til 3. umr. breyta 75 sentimetrunum í til dæmis 65 sentimetra; það er þó full alin, og ólíklegt, að nokkur sauðkind meiðist á vír, sem svo hátt liggur.