22.08.1913
Efri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 682 í B-deild Alþingistíðinda. (2036)

57. mál, girðingar

Jósef Björnsson:

Það væri gott eins og h. 6, kgk. (G. B.) gaf í skyn, að vjer gætum hjer fengið hreinar línur. Í núgildandi lögum eru línurnar ekki hreinar. Þess hefur verið krafizt, að ekki megi girða yfir vegi nema með leyfi, og þetta leyfi hefur orðið að sækja til æðri eða lægri stjórnarvalda, og hefur þá að jafnaði farið svo, að sá hefur haft sitt fram, sem fastast hefur sótt. Þetta er ofur eðlilegt, því jafnaðarlega hygg jeg að svo reynist, að sá hefur sitt mál fremur fram, sem meira á undir sjer, en hinn síður, sem er minni máttar. En þegar farið er að segja um þetta, er hætt við, að þeir kunni að fá leyfið, sem ver eru að því komnir, en sækja það fastar (G. B.: Jeg vil ekki láta leyfa neinum að girða yfir veg eða akbraut). Jeg kem að því síðar. Þar að auki efast jeg ekki um, að menn taki sjer bessaleyfi til að girða yfir vegi, og má vera, að yfir því sje eigi kært, af því að menn vita eigi nema það sje með leyfi gert. Bezt er að ákveða annaðhvort, að girða megi án leyfis yfir alla vegi nema akbrautir og þjóðvegi, eða banna það algerlega. En það síðara gæti orðið til þess, að menn yrðu að leggja margfaldar girðingar um land sitt. Jeg get tekið sem dæmi, að um land einhverrar jarðar lægi krossvegur. Þá þarf fyrst að girða um alt landið, með tilheyrandi hliðum, og svo fjórar horngirðingar, svo landið skiftist þannig í fjóra hluti, Þetta er geysi kostnaður, sem eigi má á einstakling leggja til almennings afnota. Þessvegna ætti sá, sem veg leggur, að girða fram með veginum, því ella getur landið orðið þeim, sem afnot þess á að hafa, einkis virði, er allir ganga á það. Jeg skal áður en jeg lýk máli mínu, benda á, hvort ekki sje unt að fara milliveg, eins og hv. 3. kgk. benti á, að farið væri sem minst inn á þá leið, að girða fyrir akvegi, t. d. sýsluvegi og þjóðvegi (G. B. Hreppavegir geta verið akvegir), en takmarka ekki rjett manna til að girða yfir smærri vegi. Með leyfisveitingum, sem nú tíðkast, er alls ekki greitt fyrir umferð, heldur þvert á móti, og að halda þá leið framvegis, er til ills eins.