25.08.1913
Efri deild: 38. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í B-deild Alþingistíðinda. (2046)

28. mál, ábyrgðarfélög

Steingr. Jónsson, framsögumaður:

Nefndin ræður til að samþykkja þetta frv. óbreytt, eins og það kom frá Nd. Að vísu hefur hv. Nd. gert á því nokkrar breytingar, og þær ekki óverulegar. En nefndinni lízt ekki ráðlegt að gera þær, nje einstök ákvæði frv,. að kappsmáli, heldur sje hitt rjettast að samþykkja frv, óbreytt, af því að í því felst veruleg rjettarbót.

Þá skal jeg stuttlega geta þeirra breytinga, sem orðið hafa á frumvarpinu í Nd. 1. breytingin er sú, að bætt er inn í

1. gr. frv. fjelögum, sem rekið hafa ábyrgðarstarfsemi hjer á landi full 2 ár, þegar lög þessi öðlast gildi, þó þau ekki hafi gagnkvæma ábyrgð. Að því, er jeg veit bezt, er það ekki nema eitt fjelag, er hefur not af þessu breytingarákvæði Nd., svo að breytingin er ekki mikilvæg. Nefndinni sýnist því engin ástæða til að gera þessa breytingu að kappsmáli.

Þá er önnur breyting Nd. fólgin í því, að 3, gr. er feld úr frv. Hún hljóðaði um innlend ábyrgðarfjelög. Það hefur ekki verið talin þörf á þessu ákvæði, enda virðist ekki gera mikið til, þó að fyrirskipanir um þetta biði. Það virðist því engin ástæða til að gera þetta atriði að kappsmáli.

Þá er þriðja breytingin. Hún er sú, að ákvæðið um, að fjelögin skuli skyld að setja tryggingu, hefur verið feld burtu. Nd. hefur ekki þorað að halda því fram. Það er óneitanlegt, að þetta dregur nokkuð úr gildi frv. En nefndin lítur svo á, að alt fyrir það sje nokkuð unnið við frv., þar sem eftir er þó ákvæðið, að fjelögin skuli hafa varnarþing hjer á landi. Til þess að bæta úr því, að tryggingarákvæðið hefur verið felt í burtu, hefur því ákvæði verið bætt inn í frv., að stjórn Íslands skuli sjá um það, ef á þurfi að halda, að erlend ábyrgðarfjelög greiði það fje, sem þau hafa verið skylduð með íslenzkum dómi til að gjalda. Þó jeg hafi ekki trú á, að þetta hafi mikla þýðing, bætir það þó nokkuð úr því skarði, sem varð í frv., þá er tryggingarákvæðið var felt burtu.

Að öllu athuguðu ræður nefndin því til, að samþ. frv. óbreytt.