25.08.1913
Efri deild: 38. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í B-deild Alþingistíðinda. (2051)
43. mál, samþykktir um hringnótaveiði
Guðm. Björnsson (6. kgkj.) Jeg hef leitað upplýsinga um þetta frumv., bæði hjá Bjarna Sæmundssyni, og hjá gömlum og reyndum skipstjóra, sem er í stjórn Fiskifjelagsins. Jeg hef spurt þá, hvernig þeim lítist á frumv., og hafa þeir báðir svarað, að þeir gætu ekki skilið, að það gjörði neinn skaða. Jeg fyrir mitt leyti mun því greiða atkvæði mitt með frumv. Annars verð jeg að telja það illa farið, að nefndin hefur ekki leitað álits Fiskifjelags Íslands um þetta mál; það fjelag ætti sannarlega að vera haft með í ráðum í slíkum efnum. — Um brtill. á þgskj. 559 vil jeg geta þess, að jeg er nokkuð óviss um, hvort hún eigi að samþykkjast. Jeg vil leyfa mjer að vekja athygli háttvirtra flutnm. á því, hvort fjörðurinn muni ekki vera of breiður. Samkvæmt hinum litla uppdrætti Björns Gunnlaugssonar, er breidd fjarðarins h. u. b. 3 mílur, frá suðurenda Þórðarhöfða. Nú er landhelgin ekki nema mílu, og finst mjer því íhugunarmál, hvort brtill. komi ekki í bága við gildandi lög. Ef svo skyldi vera, að háttv. flutnm. ekki hafi athugað þetta, tel jeg rjettast, að málið væri tekið út af dagskrá, þangað til menn hafa aflað sjer fullnægjandi upplýsinga um þetta atriði.