28.08.1913
Efri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í B-deild Alþingistíðinda. (2069)

91. mál, kornforðabúr til skepnufóðurs

Sigurður Eggerz:

Jeg ætla að taka það fram, að jeg fyrir mitt leyti mun greiða atkvæði með frv., því jeg get ekki sjeð neitt athugavert við það, en jeg get ekki neitað því, að mjer þykir nefndarálitið í meira lagi athugavert. Nefndin gefur bendingar um, hvernig hún telji hentugast, að kornverzluninni sje hagað framvegis. Telur hún einokun hentugustu leiðina. Aðeins með henni telur hún að tryggja megi landið gegn kornskorti. Hún er því öruggasta hallærisráðið. Jeg er á þveröfugri skoðun. Þó litið sje á málið með hallærisaugum, þá frýkkar einokunin ekki fyrir það. Og þó gengið sje út frá kaupfjelagseinokuninni, lögskorðaðri kaupfjelagseinokun, þá er mjer ljóst, að með því fyrirkomulagi mundi einmitt ærin hætta á því, að hjeruðin yrðu kornlaus. Altaf mundi ágreiningur um það í sveitunum, hvað kaupa skyldi mikið, og hætt við, að sparnaðarhugsjónin mundi standa nokkuð fast á bak við þau kaup. Hætt við, að kornforðinn yrði oft af skornum skamti, en ef illa tækist, þá ekki hægt að fá korn annarsstaðar en hjá einokunarverzluninni, og gæti það leitt til mikilla vandræða. Yfirleitt má segja það sama um þessa einokun og um alla einokun, að hún mun verða hættuleg fyrir frelsi þjóðarinnar. Við höfum fengið að reyna einokunina á fyrri öldum, og sú reynsla ætti að kenna okkur að taka hana ekki upp aftur. Aðalhættan við alla einokun er einmitt í því fólgin, að auðfjelög nái tangarhaldi á stjórninni eða þeim, sem standa fyrir verzluninni, og selji þeim verri vöru, en ef verzlunin væri frjáls, og auk þess með verra verði. Hættulegt að hafa á einni hendi umráð yfir aðal lífsnauðsynjum þjóðarinnar. Sú hönd getur orðið þjóðinni svo mikill ofjarl, að hún megi lengi að því búa. En ef verzlunin er frjáls, hvetja eiginhagsmunir kaupmanninn til þess að hafa ávalt til nægar birgðir af góðri og vandaðri vöru, því það er honum sjálfum fyrir beztu. Verzlunin gengur því betur. Mig furðar það stórum, að þar sem reynslan bendir til þess, að hin frjálsa verzlun hafi hrundið af stað ýmsum framförum hjer hjá oss, þá skuli vera farið að fara út af þessari braut og inn á hina, sem hefur reynzt mjög illa, og því álit jeg, að þessu þurfi þegar í stað að mótmæla. Jeg ætla ekki að halda langa ræðu að svo stöddu, en jeg álít, að það væri mjög hættulegt, ef farið yrði inn á þá braut, sem bent er á í nefndarálitinu, og mjer þykir það mjög leitt, að undir þessu áliti skuli standa nöfn margra af beztu mönnum bændaflokksins, einmitt þess flokksins, sem jeg hef sjerstaka trú á, að geti gert mjög mikið gagn hjá þjóðinni í framtíðinni og mjer þykir því illa farið, ef hann tekur þetta mál á sína stefnuskrá. Þegar kolaeinokunin kom til sögunnar, þá var öll þjóðin á einu máli um, að hún væri með öllu óhæfileg, og það sama vona jeg að verði niðurstaðan um þá einokun, sem hjer er um að ræða. Það virðist yfirleitt vera hjá ýmsum hjer í háttv. deild of rík tilhneiging til þess að leggja alt á herðar stjórnarinnar. Menn mega ekki gleyma því, að það er holt, að einstaklingarnir ráði sem mestu um hag sinn, og finni jafnframt til ábyrgðar þeirrar, sem því fylgir. Það er ekki rjett af þinginu að skerða þessa ábyrgðartilfinningu einstaklinganna með því að gerast fjárhaldsmaður þeirra á öllum sviðum.