28.08.1913
Efri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)

91. mál, kornforðabúr til skepnufóðurs

Sigurður Eggerz:

Hv. forseti hefur bannað að einokun sje rædd hjer í hv. deild, og skal jeg því lítið fara inn á það efni.

Hv. frsm. (G. B.), talaði um það, að samvinnan væri hinn mikli máttarstólpi að framförum vorum, og er jeg honum fullkomlega sammála um, að svo sje, bæði hvað verzlun o. fl. snertir. En frjáls kaupfjelagsskapur og frjáls samtök yfir höfuð eiga ekki neitt skilt við einokun þá, sem teygir höfuðið upp úr nefndaráliti háttv. nefndar.

Hv. frsm. (G. B.) sagði ennfremur, að það væri þjóðarnauðsyn, að kornmatur væri landsverzlun. Það er mjer með öllu óskiljanlegt. Hvaðan kemur sú nauðsyn. Hefur undanfarin ár verið kornskortur og er ekki á óteljandi hátt hægt að tryggja sjer korn, þó verzlunin sje frjáls ? Jeg hræðist einokunina, og þjóðin ætti aldrei að gleyma gömlu einokunaraugunum. En með því að hæstv. forseti hefur bannað einokunarumræður, þá vil jeg ekki fara frekar út í málið.