28.08.1913
Efri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (2076)
91. mál, kornforðabúr til skepnufóðurs
Jón Jónatansson:
Jeg ætla ekki að nota mjer þessi eldhúsdagsforrjettindi, sem mönnum hafa verið veitt hjer í dag til þess að tala um alt annað, en það, sem stendur á dagskránni.
Aðeins vildi jeg minnast á eitt atriði í ræðu háttv. 1. kgk. þm. (J. H.), þar sem hann hjelt því fram, að eftir frumvarpi þessu væri verið að setja menn á sveitina. En það nær engri átt að segja, að bændastjettin sje með þessu frv. sett á sveitina. Það væri þó sýnu nær að segja, að hún væri gerð að landssjóðsómögum. Og jeg skal fúslega játa það, að landssjóður hefur nóga ómegð fyrir, þó ekki sje þar bætt við. En hjer er að eins um styrk að ræða, stuðning og hvöt fyrir menn til að tryggja atvinnuveg sinn.
Á því veltur líka öll þeirra velferð; þeir hafa ekki öðru að treysta en atvinnu sinni. Öðru máli er að gegna um embættismennina. Ef þeir vilja ekki lengur gegna embætti, heldur fara að lifa á eftirlaunum sem landssjóðsómagar, þá biðja þeir bara um lausn frá embætti (Júl. Havsteen: Þetta nær ekki til mín. Jeg hef ekki sótt um lausn). Jeg veit það; jeg var ekki að tala um háttv. 1. kgk. þm. (J. H.) persónulega, heldur um þessi ómagaummæli hans, og um þá reglu, er embættismenn víða tíðka. Háttv. sami þm. sagði, að ef menn vildu koma upp forðabúrum, og tryggja þann veg atvinnu sína, þá mættu þeir gera það; landssjóður ætti ekki að vera að leggja neitt fram til þessa. Vill hann þá líka segja, að ef embættismenn langi til að lifa á eftirlaunum, þá megi þeir það; landssjóður eigi bara ekki að greiða þau. Annars eiga ummælin um ómagana ekki hjer við, hel.dur eiga þau betur við annarsstaðar.
Háttv. framsm. (G. B.) hefur leiðrjett háttv. 1. kgk. þm. (J. H.) um notkun forðans og endurnýjun hans. En þar sem hann yrði endurnýaður árlega, þá er ekki eins hætt við skemdum og háttv. 1. kgk. þm. (J. H.) ráðgerði.