28.08.1913
Efri deild: 41. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)
91. mál, kornforðabúr til skepnufóðurs
Forseti:
Jeg verð að vísa því frá mjer, að jeg hafi leyft nokkrar eldhúsdagsumræður hjer í deildinni í dag. Þvert á móti. áminti jeg háttv. ræðumenn um, að fara ekki út fyrir efni frv.; hitt kannast jeg við. að jeg hef liðið, að nokkuð hefur verið vikið frá frv., en leyft hef jeg það alls ekki.