29.08.1913
Efri deild: 42. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (2085)
68. mál, bygging, ábúð og úttekt jarða
Það má ekki láta mál þetta afskiftalaust til langframa; það er talsvert farið að brydda á gróðabralli með jarðeignir hjer á landi, en það þurfum vjer að forðast, að jarðirnar verði leiksoppur í höndum gróðabrallsmanna. Þeir, sem landið vilja rækta og framleiða; gæði úr skauti jarðarinnar, eiga að hafa fullan rjett til að njóta þeirra, og jeg er ekki í neinum vafa um, hverra rjett eigi að meta meira, þessara tveggja, þeirra, sem leggja fram krafta sína til að auka verðmæti landsins, eða hinna, sem ávaxtanna vilja njóta, án þess að hafa lagt fram vinnu eða fje. Hjer hygg jeg hljóti að vera hægt að skipa svo fyrir, að rjetti hvorutveggja:
landeiganda og leiguliða sje nokkurnveginn borgið.
Eitt atriði var það, sem háttvirt Nd. tók til meðferðar, en gafst upp við, það var ákvæði um hús á jörðum. Í frv. um ábúð, bygging og úttekt jarða, sem þingið 1911 fjallaði um, var þetta tekið með, og var í nefndaráliti þessarar deildar bent á úrlausn, sem virðist hyggileg. Þar var gert ráð fyrir, að jarðeigendur eignuðust öll hús á jörðum sínum og bygðu þau upp, þegar þyrfti, en þar var og gert ráð fyrir, að þessi kvöð færðist smátt og smátt yfir á jarðeigendur og þannig, að ekki var líklegt, að mikil vandræði mundu stafa af því eða verðfall jarða. En því miður hefur háttv. Nd. nú látið þennan hluta málsins falla niður, og hjeðan af varla fært að taka það upp hjer í deild, svo áliðið sem nú er orðið þingtímans.
Jeg skal leyfa mjer að benda á, hvernig fer, ef leiguliðar byggja t. d. hlöðu. Þegar þeir fara af jörðu, fá þeir ekkert endurgjald fyrir byggingarnar, nema einungis fyrir þökin, alla veggi, — ætla þá minnu, sem í þeim liggur, verða þeir að láta eftir, án þess að fá nokkuð fyrir. Nú leggja menn t.d. mikið kapp á að byggja heyhlöður, og veggirnir, hlöðutóftirnar kosta feikna mikla vinnu, eru afardýrar; en ef sá, sem byggir hlöðurnar fer frá jörðunni, þá getur hann aðeins selt þakið, ef til vill, fyrir eitthvert verð, en fyrir veggina fær hann ekki neitt. Og ekki nóg með það, dæmi munu vera til þess, að ef heygarðar hafa verið á jörðinni, en sem ekki þarf að nota eftir að hlöðurnar voru bygðar, hafa menn þó orðið að svara á þá álagi, samkvæmt nú gildandi Iögum.
Á alþingi 1911 var ákveðið, til þess að ýta undir góða áburðarhirðingu og ræktun landsins, að eigi skyldu teknar til greina jarðabætur þær, sem ekki væru til áburðarhúsa. Þetta var skynsamlegt í sjálfu sjer, en er nokkur sanngirni í að heimta þetta af leiguliðum, meðan rjetti þeirra er ekki betur borgið en nú er? Ákvæði á. búðarlaganna um viðhald mannvirkja eru ekki heldur sem hagkvæmust, og mætti ýmislegt til telja, sem úrelt er í þeim, og sem ekki væri ástæða til að framfylgt væri. Tvö af fjórum atriðum, sem nefndin hafði til meðferðar, hefur hún gefizt upp við, nefnilega húsin og ábúðartímann, og þarf það að takast upp aftur sem fyrst, aftur á móti leggur hún til, að breyting komi á viðvíkjandi kúgildum og endurgjaldi fyrir jarðabætur.
Jeg vil víkja fáum orðum að fyrstu breytingartillögunni. Nefndin lítur svo á, að hún geti ekki komið að neinum notum. Og engin ástæða er til að taka upp þessa grein ábúðarlaganna í þetta frumvarp. Í 2. greininni er farið inn á betri og sanngjarnari leið fyrir báða málsaðila, en þó einkum leiguliða, þar sem endurgjaldið er hækkað úr einni krónu upp í eina krónu og 50 aura. Að því, er snertir þriðju greinina um kúgildin, þá hefur nefndin aðhylzt ákvæðið um, að leiguliðar geti losast við kúgildin, en telur þó ekki heppilegt, að láta það ákvæði ná til gildandi leigusamninga, og er eðlilegast, að slíkt sje samningsatriði milli samningsaðila.
Annars er ekki þörf að fara fleiri orðum um breytingarnar. Frumvarp þetta er ekki nema bráðabirgðabót á núgildandi ákvæðum, og hefur nefndin minzt á, að gagnbreyta þurfi ábúðarlöggjöfinni, og að safna þurfi nauðsynlegum upplýsingum þar að lútandi. En aftur á móti hefur hún ekki komizt að fyllilega fastri niðurstöðum, hvaða leið skuli fara til að safna þeim. Líklegt er, að unt væri að safna slíkum upplýsingum, sjerstaklega ef stjórnin vildi beitast fyrir því, og þá með tilstyrk Búnaðarfjelags Íslands og búnaðarsambandanna, og hygg jeg, að mikið megi gera, ef viljann ekki vantar. Eftir þeim upplýsingum, sem fengjust með þessu móti, ætti síðan að semja frumvarp, sem lagt yrði fyrir næsta alþingi, og síðan rætt þar og rannsakað rækilega, og að því búnu borið undir atkvæði eða álit þjóðarinnar, því það þarf vel að vanda, til þess að hvorki sje gengið á rjett Iandsdrottins, nje hagur leiguliða fyrir borð borinn, því að ef ekki verður komið í veg fyrir þetta, þá á engin leiguliðaábúð að vera til, Það er ómótmælanlegt, að þeir, sem eiga jarðirnar, sem þeir sitja, rækta þær bezt, en það þarf að varast, þegar verið er að ýta undir sjálfsábúðina, að ofþungar kvaðir verði lagðar á landsdrotna, svo að þeir neyðist til að selja jarðir sínar, ef til vill undir sannvirði, og má fyr rýmka um rjett leiguliðanna en svo sje. Jeg vænti þess, að háttvirt deild fallizt á brtill. nefndarinnar, og veit jeg, að þessar umbætur, þó að ekki sje meiri en þær eru, muni horfa til bóta.