01.09.1913
Efri deild: 43. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (2097)

68. mál, bygging, ábúð og úttekt jarða

Jón Jónatansson, framsögumaður:

Það er óþarfi að segja margt um þetta frv. nú. Því var hreyft við 2. umr., að ákvæði frv. um kúgildin gætu valdið vandræðum,. að því er snertir smjörafgjald af bændakirkjujörðum. Nefndin hefur ekki sjeð neina. ástæðu til að koma fram með neina brtill. um þetta efni; því að þótt þetta frv. verði samþykt, breytir það mjög lítið núgildandi lögum um þessi efni, Það getur verið samkomulagsatriði milli landsdrottins og leiguliða, hvort afgjaldið er greitt í smjöri eða á annan hátt. Það verður ekki sjeð, eins og jeg sagði, að þær breytingar á lögunum, er hjer er farið fram á, snertir neitt þessi efni; það er samningsatriði eftir sem áður. Jeg vona því, að frv. njóti sömu velvildar og áður hjer í deildinni,. og að það nái fram að ganga.