17.07.1913
Neðri deild: 13. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í C-deild Alþingistíðinda. (211)

47. mál, styrktarsjóður handa barnakennurum

Jón Magnússon:

Það er rétt hjá háttv. 2. þm. Rvk. (J. J.), að eg andmælti þessu frv. í fyrra sökum undirbúnings, og greiddi eg þá atkv. móti öllum greinum þess um afstöðu mína til frv. nú er það að segja, að eg sé enga ástæðu til þess að svifta stjórnarráðið því valdi, að tilnefna einn mann í stjórn sjóðsins, og greiði því atkv. gegn 2. gr. Að öðru leyti mun eg greiða atkvæði með frv.