01.09.1913
Efri deild: 43. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)

81. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík

Steingr. Jónsson:

Jeg ætla aðeins að segja örfá orð, út af því, sem hv. þm. Barð. sagði, að mótstöðumenn þessa frv. sökuðu kjósendur um ístöðuleysi og æsingar. Jeg skal nú ekkert segja um það, hvað mótstöðumenn þessa frv., öðrum en mjer, gengur til, nje hvað þeir kunna að hugsa um kjósendur. En mjer virðist að bak við þessi orð þm. liggi nokkur misskilningur, sem sje sá, að hann hjelt, að borgarstjórakosningin yrði að vera pólitískt mál, en þetta er ekki rjett álitið; því kosning borgarstjóra á einmitt að vera utan við alla pólitík. Sá maður þarf eingöngu að vera kosinn eftir verðleikum hans til þess að stjórna bænum, og því er áríðandi, að forða slíkri kosningu frá öllum pólitískum æsingum. Borgarstjórinn á að vera talsmaður bæjarstjórnarinnar, hann á að framkvæma fyrirskipanir hennar og sjá um fjármál bæjarins, og því er sjálfsagt að hann sje kosinn af bæjarstjórninni og engum öðrum. En sje það vilji bæjarstjórnarinnar og meiri hluta kjósenda, sem ekki er sannað, að borgarstjórinn verði framvegis kosinn af öllum kosningarbærum mönnum, þá hlýtur það að stafa af því, að reynslan hefur sýnt, að bæjarstjórnin sje svo illa skipuð, að hún sje ekki fær um, að inna af hendi þetta fyrsta og sjálfsagðasta verk sitt, að kjósa sjer borgarstjóra. Ef þetta er bygt á reynslunni, þá ætti það sannarlega ekki að leiða til þess, að borgarstjórinn yrði kosinn af almenningi, heldur til hins, að hann yrði skipaður af konungi. Af þeim ástæðum, sem jeg nú hef tekið fram, mun jeg greiða atkvæði mitt á móti þessu frv.