05.09.1913
Efri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Guðmundur Björnsson:
Sjálfur á jeg hjer enga brtill., en vil þó minnast á fáein atriði í þessum kafla fjárlaganna.
Jeg er þakklátur háttv. fjárlaganefnd fyrir það, að hún tók til greina tilmæli mín við hana um að hækka styrkinn til að koma upp sjúkraskýlum á föstum læknasetrum (12. gr. 10. b.), og utanfararstyrk hjeraðslækna (12. gr.10 b.). Hins vegar verð jeg að segja, að jeg er háttv. nefnd ekki þakklátur fyrir brtill. hennar um styrkinn til heilsuhælisins á Vífilsstöðum. Mjer kom brtill. þessi nokkuð á óvart. Mjer hafði satt að segja aldrei dottið í hug, að háttv. nefnd mundi breyta þar til, allra sízt að hún mundi færa niður styrkinn til hælisins, án þess að hafa tal af mjer. Jeg ásaka hina háttv. nefnd þó ekki þunglega fyrir þetta, því að hún hefur þær málsbætur, sem við allir þekkjum, að hún hefur átt fjarska annríkt. En jeg get ekki látið ummæli hennar í nefndarálitinu með öllu óumtöluð. Í orðum hennar liggja nfl. allþungar ásakanir á stjórn heilsuhælisfjelagsins. Jeg get að vísu látið mjer á sama standa um það, sem að mjer er beint af ámælunum, en verð, hvað sem mjer sjálfum líður, að taka málstað þeirra annara manna, sem mest eiga hlut að máli, en það eru þeir Klemenz Jónsson landritari, sem er formaður fjelagsins, og gjaldkeri þess, bankastjóri Sighvatur Bjarnason. Háttv. nefnd „vonast eftir, að stjórn heilsuhælisfjelagsins geri sitt ítrasta til að spara“. Með þessu er gefið í skyn, að við höfum ekki haft nægan áhuga á að spara. Hjer er þá að líta á merkin, þau sýna verkin. Heilsuhælið á Vífilsstöðum er vafalaust vandaðasta húsið okkar. Þeir, sem vit hafa á, eru þess fulltrúa, að það muni geta staðið 1000 ár, ef engin alveg óvenjuleg atvik bera að höndum. Hjer á landi er húsagerð dýrari en víðast annarsstaðar. Ukkur var nú frá upphafi ljóst, að áríðandi var, að spara sem mest byggingarfjeð. Hitt var okkur jafn ljóst, að vandað þurfti húsið að vera. Nú er komið á daginn, að hvorttveggja þetta hefur tekizt vonum betur, og er það ekki sízt því að þakka, að við áttum ágætan mann að við húsgerðina. þar sem var Rögnvaldur Ólafsson byggingameistari. Útkoman er sú, að okkar hæli er ódýrara en jafnstór heilsuhæli annarsstaðar á Norðurlöndum, og þó eitt af þeim allra vönduðustu. Þá er að líta á reksturskostnaðinn — en að honum munu ummæli nefndarinnar einkum lúta, — og athuga, hvort þar hefði ekki mátt spara. Hælið tók til starfa 1. september 1910. Vjer reyndum að gera oss sem glegsta grein fyrir reksturskostnaðinum, og sömdum síðan nákvæma áætlun. Á henni var það bygt, að sótt var til þingsins 1911 um 25000 kr. styrk á ári, en það var það minsta, sem líkindi þóttu til að heilsuhælið kæmist af með. En þá fór svo, að þingið veitti ekki nema 18000 kr. Afleiðingin af þeirri sparsemi þingsins varð sú, að hælið komst í mestu fjárkröggur og er í þeim enn í dag. Vandkvæðin byrjuðu á því, að eigi var unt að fá lán utanlands, þrátt fyrir það, þótt þingið 1911 heimilaði landssjóðsábyrgð á því. Allir þóttust þá vera í fjárþröng, jafnt utanlands sem innan. En nú segja þeir í nefndarálitinu, að við höfum ekki sparað. Við ekki sparað ! við sem höfum orðið að skera alla skapaða hluti við neglur. Við höfum orðið að hafa of fáar hjúkrunurkonur, svo að þær hafa haft alt of mikið að gera. Svo vantar okkur aðstoðarlækni. Það er jafnan hætt einu auganu, nema vel fari; þarf eigi annað en heilsuhælislæknirinn fatlist frá alt í einu að óvörum, þá horfir strax til stórvandræða. Það getur ekki hver og einn læknir komið í hans stað, til þess þarf mann með sjermentun. Af þessu meðal annars er aðstoðarlæknir nauðsynlegur, og verður ekki án hans verið til lengdar. Við höfum ekki einu sinni haft efni á að kaupa sótthreinsunarofn, og höfum orðið að senda út í Laugarnes allan fatnað, sem sótthreinsa hefur þurft. Sjá víst allir, hvílík fyrirhöfn það er. Þá er siður en svo, að við höfum verið þess megnugir, að koma upp fjósi og hlöðu, en það mundi verða til stórsparnaðar fyrir hælið, ef þar væri haft kúabú. Við höfum reynslu fyrir því á Kleppi. Ennfremur vantar aflvjelar — rafgönguvjelar — í þvottahús og eldhús; en þær mundu spara fólkshald, ef fengnar væru. Okkur hefur jafnvel skort fje til þess að geta málað húsið, og ekki er svo mikið um, að Rögnvaldi Ólafssyni hafi enn orðið að fullu goldin aðstoð hans við byggingu heilsuhælisins, ög var það þó óvenjulítið, sem hann setti upp fyrir sitt mikla og vel unna verk. Honum hefur verið kunnugt um fjárþröngina, og hann hefur jafnan sagt okkur, að við skyldum láta sig sitja á hakanum, og það höfum við við hingað til orðið að gera. Það bætir ekki um, að innheimtan hefur gengið mjög tregt, og útistandandi skuldir farið sívaxandi. Margur á erfitt með að borga. En verstu skuldunautarnir eru þó hreppsnefndirnar. Eitt er það þó, sem við höfum ekki sparað, og aldrei kemur til orða að spara. Við höfum látið það sitja fyrir öllu, að vel færi um sjúklingana, og að þeir fengju allan þann sama viðurgerning, sem tíðkast í öðrum löndum í heilsuhælum þar.
Það mátti sannarlega búast við því, að reksturskostnaðurinn yrði hjer nokkru meiri en annarsstaðar. Ýms matvæli eru dýr hjer, að jeg ekki tali um kolin, þau eru bæði dýr, og eðlilega þarf mikið af þeim í þessu kalda landi. En reynslan er sú, að kostnaðurinn hefur ekki orðið meiri á mann hjer en í alþýðuhælum erlendis, meira að segja: hann hefur orðið minni en í mörgum útlendum hælum af sömu gerð. Það sannast hjer sem oftar, að hægra er um að tala en í að komast. Það sannast á fjárlaganefndinni. Jeg veit það ekki, en jeg efast um, að öðrum sje það meira áhugamál, að spara fje landsins en okkur, sem nú stjórnum Heilsuhælisfjelaginu. Jeg læt mjer á litlu standa, hvað sagt er í minn garð; jeg ætlast ekki til, að minn starfsreikninnur sje gerður upp, fyr en æfi mín er á enda. En mjer stendur ekki á sama, hvað sagt er um samverkamenn mína hjer á þessum stað, þar sem þeir eiga ekki kost á að bera hönd fyrir höfuð sjer. Einkum tel jeg þetta álas koma mjög ómaklega niður á hr. bankastjóra Sighvati Bjarnasyni. Hann hefur frá upphafi verið gjaldkeri Heilsuhælisfjelagsins og haft með höndum alla reikninga þess; hann hefur annast alla byggingarreikninga hælisins og alla rekstursreikninga þess. Þeir, sem vit hafa á reikningshaldi, skilja eflaust, hve geysimikil fyrirhöfn það hefur verið; og alt þetta vandaverk hefur hann unnið með sífeldum lifandi áhuga, ráðdeild og sparnaði. Hvað hefur hann svo fengið að launum? Ekki einn eyri. Jú, nú er farið að bóla á laununum. Og hver eru þau? Ámæli! ámæli fyrir það, að hafa ekki unnið af nógu miklu kappi, ekki hugsað nóg um sparnaðinn ! Ef hann hefði verið skáld, og ort læsileg ljóð í frístundum sínum, þá mundi hann, eins og gengur, hafa öðlazt lof og laun hjá þingi og þjóð. Nú hefur hann — í stað þess að yrkja — unnið árum saman, öldungis kauplaust af einskærri föðurlandsást að einu mesta nauðsynjamáli þjóðarinnar. En þakkirnar þá? Ámæli fyrir það, að hafa ekki unnið nógu mikið ! — Það eru þakkirnar.
Þá er stjórn Heilsuhælisfjelagsins sökuð um það af fjárlaganefndinni, að ekki sje lagt alt kapp á að afla hælinu fjár með samskotum, fjelagsgjöldum og sjerstaklega með minningargjöfum. Má jeg spyrja? Hvenær hefur áður tekizt að afla svo mikils fjár til líknarverka hjer á landi? Aldrei ! Það er satt, að tillögin fækka. En hvað vitið þið um alt það strit stjórnarinnar, um alt það, sem unnið hefur verið í kyrþey til að afla hælinu fjár.
1912 voru tillög . . . kr. 6307,73
gjafir . . . . . . . . . — 7496,48
Sumt af gjöfunum var vísu
ekki ætlað til eyðslu.
Árstíðaskrár gáfu — 4214,25
Þetta varð samtals kr. 18018,56
Það er svo, að tillögin þverra; en gjafirnar haldast. Söm er reynslan í Danmörku. Og þótt styrkur til hælisins frá þjóðinni sje ónógur, þá eru þó hlutfallslega öllu meiri frjáls tillög hjer á landi en í Danmörku til heilsuhæla þar. Ef við berum okkur saman við Danmörku, þar sem unnið er svo kappsamlega að þessu máli, þá er hjer lagt fram meira að tiltölu við fólksfjölda til heilsuhælis, af frjálsum vilja, en þar. Þá er að minnast á minningargjafirnar. Stjórnin er sjerstaklega sökuð um það, að hún hafi vanrækt að bera sig eftir þeim gjöfum. Nú er mjer spurn: Eru menn vissir um, að árstíðaskráin hefði lánast svo vel sem raun er á orðin, hver svo sem á hefði haldið ? Sleppum því. Ef menn vinna að einhverju af fremsta megni og verður vel ágengt, þá eru þakkirnar hjer á landi vanalega þannig orðaðar: „Þú ert ónýtur, þú hefur trassað þetta, þú hefðir getað gert það miklu betur“. Annars er þingheimi frjálst að fá að vita, hvað gert hefur til þess að afla minningargjafa. Það hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir til þess. í fyrsta lagi hafa verið fengnir trúnaðarmenn í öllum kaupstöðum og þrem öðrum kauptúnum. Í öðru lagi hefur öllum prestum verið skrifað og þeim sendir minningarskildir og eyðublöð, og þeir beðnir liðs. En örfáir hafa svarað. Að vísu hef jeg rekið mig á það, að stundum koma ekki fram slík skrif, þótt með póstum sjeu send; en þó hlýtur meiri hluti þeirra að hafa komið til skila, þótt árangurinn hafi því miður enn orðið alt of lítill. Við höfðum borið góðar vonir til prestanna og þeir hafa líka margir reynzt okkur beztu menn, og jeg er þess fullviss, að svo muni enn verða.
Alt þetta hefði háttv. nefnd fengið að vita, ef henni hefði þóknazt að hafa tal af mjer.
Það hefur oft verið vakið máls á því, að landssjóður ætti að taka að sjer heilsuhælið. Haldið þið, að það yrði ódýrara? Nei, og aftur nei. Jeg, segi ykkur satt, það yrði miklu dýrara. Jeg hef meiri kynni af sjúkrahúsum landsins en nokkur annar hjer í deild, og veit með vissu, að jeg fer hjer með satt mál. En jeg segi það, og segi það í fullri alvöru, að ef alþingi skilur þetta ekki, þá veit jeg ekki, hvernig fer, veit ekki hversu margir fást til að stjórna hælinu, fórna sjer, taka að sjer erfiði og áhyggjur í vanþökk þingsins. Þó má ekki skilja orð mín svo, að jeg ætli mjer að hætta að hafa afskifti af hælinu; það geri jeg ekki, fyr en öll sund eru lokuð, og lokast skulu þau ekki á meðan jeg hef mátt til að varna því ! Þá segir háttv. nefnd, að beri hælið sig ekki, þá „geti komið til mála“, að hækka meðgjöf sjúklinganna. Þetta hefur líka oft komið til mála. Stjórn hælisins hefur hvað eftir annað verið að velta því fyrir sjer. Hjer á þingi klingir sú bjalla iðnlega, að ekki megi auka skattana eða leggja á nýja skatta, þjóðin þoli það ekki. En hvaða skattur ætli sje þyngstur á alþýðu manna? Það veit hver læknir. Enginn skattur er á við veikindaskattinn. Hvert vinnuhjú og hver lausamaður getur borið 3–4 kr. skatt á ári og jafnvel 810 kr., en 300 kr. á einu ári, það getur þorrinn af þessu fólki ekki risið undir. Vistartíminn á heilsuhælinu er hjer, eins og annarsstaðar, til jafnaðar hálft ár. Kostnaðurinn yfir þann tíma með því gjaldi, sem nú er tekið, er þá sem næst um 300 kr. (Stgr. J.: Ekki fyrir hálft ár). Jú, ef meðgjöfin er 1 kr. 40 au. á dag, og þar við bætt ferðakostnaði og fataútbúnaði til hælisvistarinnar, þá er það suðsjeð, að kostnaðurinn fer fljótlega upp í 300 kr. Þetta er sá skattur, sem öllum þorra manna hjer á landi er um megn.
Þegar þessa miklu hættu, brjóstveikina, ber að höndum, þá á alþýðumaðurinn —og enda fleiri — oft um tvent að velja; láta lífsvonina eða láta sjálfstæði sitt. Þá verður hann að leysa úr þeirri spurningu: hvort á meira að meta lífið eða frelsið? Jeg hef ekki svo sjaldan orðið þess vís, hvílíkt stríð það kostar margan mann að ráða úr þeirri spurningu. En reyndin er þó sú yfirleitt, að menn elska lífið yfir alla hluti fram og leggja flest í sölurnar til að halda því, og þess vegna er það svo algengt, að menn offra sjálfstæði sínu, fara á sveitina, til að bjarga lífinu; en hart er þetta aðgöngu fyrir margan mann sem vonlegt er. Mjer hefur ávalt sárnað að vita til þess. Jeg hef þessvegna frá upphafi haldið því fram, að í hælinu þyrftu að vera mörg ókeypis rúm, og önnur ódýr, svo að efnalitlu fólki væri ekki um megn. Með öðrum orðum. Það eru mestu vandræði að þurfa að hækka meðgjöf sjúklinga á Vífilsstöðum, það þyrfti miklu fremur að lækka hana.
Þetta úrræði að hækka meðgjöfina, hefur sannarlega oft komið til tals milli okkar forstöðumannanna, þegar hælið hefur verið í fjárþröng — og það er það sifelt — en við höfum aldrei getað fengið okkur til þess. Síðast núna í vor sem leið var um þetta talað, þá vorum við í mestu vandræðum með að borga vexti af erlenda láninu, og um sömu mundir þurfti að borga háan kolareikning. Þá var eins og oftar full ástæða til að segja: „Þetta gengur ekki, það verður að hækka meðgjöfina. En það fór sem oft áður, að við gátum þó ekki fengið það af okkur; og jeg skai ségja ykkur hvað við gerðum: við tókum 6000 kr, víxillán upp á eigin persónulega ábyrgð okkar. Þetta lán verðum við að borga strax í haust, ef ekki fæst framlenging á því, og að því getur rekið, að við verðum að borga lánið sjálfir að einhverju leyti eða öllu, ekki sízt ef þingið færir niður styrkinn til hælisins; þá höfum við þó á endanum fengið einhver laun, sem um munar, haft eitthvað upp úr öllu stritinu. Þetta er nú sannfróðleikurinn nm heilsuhælið. Ef háttv. nefnd og aðrir háttv. deildarmenn trúa mjer ekki, þá nær það ekki lengra. En ef menn trúa orðum mínum, þá veit jeg, að háttv. nefnd muni taka brtill. sína aftur, og allir háttv. deildarmenn munu fúsir að íhuga til 3. umr., hvort ekki sje ástæða til að hækka styrkinn, veita það sem um var beðið, 30000 kr. hvort árið.