05.09.1913
Efri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (2155)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Steingrímur Jónsson, framsögumaður:
Jeg vil aðallega gera nokkrar athugasemdir við það, sem sagt hefur verið síðan jeg talaði.
Hv. þm. V. Skf. minntist á Breiðafjarðarbátinn og auðvitað tók háttv. þm. Barðstrendinga í sama strenginn. Jeg get viðurkent það, að styrkurinn sje of lítill, ef sýslubúar þar vestra ætla sjálfir að gera út bát Það er galli, hve skamt þetta mál er á veg komið, en að fara að veita 9000 kr. til Varangersútgerðarinnar, álít jeg ekki rétt. Háttv. þm. Barðstr. sagði, að jeg hefði sagt, að báturinn gengi einungis um Breiðafjörð; jeg sagði einungis, að upphæðin væri veitt til „bátaferða á Breiðafirði“. Mjer er það kunnugt, að hann gengur til Ísafjarðar og jafnvel stundum til Reykjavíkur, en það eru hagsmunir útgerðarinnar, sem ráða því, hvernig áætluninni er hagað. En landstjórnin mundi hafa litið alt öðruvísi á, ef Breiðfirðingar hefðu farið að fordæmi Eyfirðinga um bátaferðir sínar.
Viðvíkjandi Hvalfjarðarbátnum hef jeg ekkert að segja, því jeg hef engar þær upplýsingar fengið, að jeg geti álitið nauðsynlegt að veita þessa upphæð.
Háttv. þm. V.Skfs. færði margar og sennilegar ástæður fyrir því, að veita ætti fje til Jökulsárbrúarinnar, og mun jeg ekki rengja þær. En þar sem hann talaði um orð mín og annars þm. hjer í deildinni um þetta mál á síðasta þingi, og taldi þau sem loforð fyrir því, að fje þetta yrði veitt nú, þá er þetta ekki rjett; jeg sagði einmitt, að þetta mætti ekki skoða sem loforð á næstu fjárlögum. Í ræðu minni var einungis sagt, að þingið mundi veita fje til þessarar brúargerðar, er það sæi sjer það fært, en jeg álít, að svo sje ekki enn sem komið er. Og enn eitt dregur úr nauðsyninni, að 1914 verða Víkverjar og Mýrdælir búnir að fá síma, (Sig. Eggerz: Ekki fara þeir yfir ána á símanum). Satt er það, að þeir fara ekki yfir ána á símanum, en hann tengir band milli Víkur- og Vestm.eyja, sem er mikilsvert. Það þarf sjerstaka knýjandi ástæðu til að fara að íþyngja landssjóði með þessari brú, en nú er einmitt minni þörf en 1911. Nú liggja einnig fyrir þessu þingi lög um hafnargerð í Vestm.eyjum, og má benda á, að höfn þessi er ekki eingöngu fyrir Eyjarnar heldur hefur Skaftafs. líka gagn þar af, og þessi hafnargerð eykur mjög útgjöld landssjóðs. Það væri gaman að geta brúað ána líka, en jeg sje eigi, að það se fært að þessu sinni. En það er fleira en þessi brúargerð, sem menn þar eystra hafa gagn af að gert sje. Eitt af því, sem hafði áhrif á nefndina, var álit Iandsverkfræðingsins, og skjöl þau, sem lágu fyrir þinginu 1911, bera það með sjer, að hann hefur aldrei lagt til, að á þessi yrði brúað, en aðeins áætlað, að, ef það yrði gert, mundi sú brú kosta 78 þús. kr. Smáhlaup áleit hann að ekki mundu granda henni, en ef stórhlaup kæmi, eins og 1860, þá gæti henni verið hætta búin. Þó hefur landsverkfræðingurinn látið það álit sitt í ljósi, að sá möguleiki væri líka, að brúin stæði en áin færi, því hjerna megin er árfarvegur, sem hún ef til vill getur lagzt yfir í. Og þykist jeg nú hafa sýnt það nægilega, að frá þinginu 1911 hafi alls ekki legið fyrir loforð um fje til þessarar brúargerðar nú á þessu fjárlagafrumvarpi.
2. aðalástæða hv. þm. V.-Sk. (S..E.) var sú, að áin væri hið mests manndrápsvatn. Jeg lái hv. þm. eigi, þó að hann legði áherzlu á þetta, enda var ræða hans um þetta mjög átakanleg. En jeg hef heyrt fleiri sagnir um þetta. Þá er jeg fór fyrst yfir Blönduá á svokölluðu Móvaði, var mjer sagt, að hún hefði drepið 19 manns þar á vaðinu, og að hún yrði ekki brúuð, fyr en 20 manns hefðu farizt þar. Það eru ekki alt af verstu árnar, sem mannskæðastar eru, og bana flestum mönnum. Jeg hygg t. d., að Jökulsá í Öxarfirði sje ekki síður mannskæð en aðrar ár. En af því að hún er hvergi reið, á milli fjalls og fjöru, hafa fáir druknað í henni.
H. þm. Strand. (G. G.) tók aftur fyrri brtill. sína á þgskj. 687, en ekki þá síðari. Jeg viðurkenni, að brtill. verður aðgengilegri ef bætt er inn í orðinu „alt að“, en jeg sje ekki, að hún sje nauðsynleg, því það verður lagt fje til vegarins, ef það er ekki óhjákvæmilega nauðsynlegt til annara vegagerða. Og það er ekki rjett, að þessi vegur gangi á undan öðrum vegum, sem óhjákvæmilega nauðsynlegt er að gera við. Því væri viðkunnanlegra, að h. þm. (G. G.) tæki brtill. aftur Jeg hlýt að minsta kosti að vera henni mótfallinn.
H. þm. N.-Múl. (E. J.) talaði um lækninn í Hróarstunguhjeraði. Hann hafði það að ástæðu, að læknirinn hefði ekki húsnæði, en slíkt tel jeg litla ástæðu. Jeg þekki vandræðin með bústaði læknanna vel úr Þingeyjarsýslu, en þar hefur lækna aldrei vantað hús, ef jörð hefur fengizt til að láta það standa á. Hjálpar sýslan ekki hjer? (E. J.: Hún hefur boðizt til þess).
Jæja. Þá ætti líka að verða bætt úr þessum læknavandræðum. Nefndin hefur ekki viljað veita styrk til að sækja lækni frá Fljótsdal og niður að sjáfarsandi. Aftur viðurkennir nefndin, að rjett sje, að Borg6rðingum verði veittur styrkur, eins og Árnesshrepp í Strandasýslu. Hún er því ófús á að hækka þennan lið.
Viðvíkjandi ummælum háttv. þm. Barð. (H. Kr.) um Breiðafjarðarbátinn, þá hef jeg svarað honum, er jeg svaraði háttv. þm. V.-Skf. (S. E.).
Háttv. sami þm. mintist á styrkinn til Rögnv. Ólafssonar. Þar er jeg honum ekki sammála. Jeg rengi það ekki, að hann sje fær maður — og jeg er dálítið kunnugur honum. Það er enginn vafi á því að hann er vel að sjer í allri húsagerð, og að hann hefur reist sjer traustan minnisvarða með Vífilsstaðahælinu. En þessi utanför er ráðin í sjerstöku skyni til að kynnast gerð á geðveikrahælum. En nefndin vonar, að hann geri meira, að hann kynnist yfirleitt seinustu húsagerðanýungum hins síðaða heims. Hún vonar, að það lifni og hýrni yfir hug hans, er hann sjer allar framfarirnar, er gerzt hafa í list hans erlendis seinasta áratuginn. Það trjenast allir dálítið upp hjer heima.
Eins og jeg bjóst við, talaði h. 6. krk. þm. (G. B.) um Vífilsstaðahælið og átaldi nefndina fyrir niðurfærslu hennar; tók það mjög óstint upp fyrir henni, og það, að hún hefði ekki ráðgazt um þetta við sig. Til þess sáum við enga ástæðu, að bera málið undir hann að þessa sinni. Við höfðum fyrir okkur reikningana og áætlanirnar. Og það var óþarfa tímaeyðsla að boða heilsuhælisstjórnina á fund. Það hefði ekki breytt afstöðu og tillögum nefndarinnar. H. 6. kgk. þm , sagði ennfremur, að í nefndarálitinu lægju allþungar ásakanir í garð stjórnar þessa fjelags. Ef hann hefði lesið álitið nákvæmlega, þá hefði hann sjeð, að þetta er ekki rjettur skilningur. Um tillög til fyrirtækja tölum við víðar, og sparnað prjedikum við seint og snemma, t. d. í athugasemdum um póstmálábálkinn og víðar. Það þarf því ekki að skilja þetta svo, sem þessi athugasemd feli í sjer nokkra ákúru til stjórnar heilsuhælisfjelagsins. Við þóttumst ekki geta komizt hjá að gera athugasemd um þetta efni; það eru ýmsir liðir í reikningnum hælisins, er okkur þótti fullháir. Þótt húsið sje gott, fer þó fullmikið til viðhalds o. fl. mætti nefna. Þessu verður alls ekki neitað. En í þessu sambandi vil jeg taka fram, að jeg sje ekki eftir þeim peningum sem varið hefur verið til þessa veglega húss. Þetta er ekki mælt af þeirri ástæðu.
Í sambandi við þetta vildi jeg minnast á útistandandi skuldir. Það má vel vera, að hjer sje við erfiðleika að stríða, að hagur þeirra, er hjer eiga hlut að máli, sje mjög bágborinn. En vafalaust gætu fleiri borgað en gera, ef hart væri aðgengið. Það er alls ekki rjett hjá h. 6. kgk. þm., að jeg, eða nefndin, hafi gefið það í skyn, að stjórnin stæði illa í stöðu sinni, eða við vildum hnýta í hana. Því fer fjarri. Nefndin segist einmitt vonast eftir, að stjórn heilsuhælisfjelagsins geri hið ítrasta til að spara og afla hælinu tekna. Hjer er traust til stjórnarinnar látið í Ijósi (G. B.: Það hafa allir skilið það öðru vísi). Sá skilningur er alls ekki í samræmi við hljóðan orðanna, og hann er beinlínis rangur eftir tilætlun þeirra (G, B.: Það gleður mig). Ef þessi ummæli hafa alment verið skilin svo, þá er það af því, að mönnum er gjarnt að snúa orðum um náungann á sem verstan veg.
Það er rjett, að nefndin bendir á leiðir til að afla hælinu fjár. Hún vill, að menn sjeu uppörfaðir til fjárframlaga, og hún gat varla gert það hógværlegar en hún gerði, eftir afstöðu sinni. Það er kunnugt, að undirtektirnar undir málið voru mjög góðar 1906. Það er sízt að undra, þótt nokkuð hafi dregið úr þeim áhuga og hita, er þá logaði. Stjórn hælisins hefur unnið mikið verk og þarft fyrir hælið. Þá er tillög til þess minkuðu, voru árstíðaskrárnar fundnar upp. Og það er nú ekki nema eðlilegt, að bent sje á þessa leið til að reyna að ná meiru. Mjer er það ekki kunnugt, hvort stjórnin hefur snúið sjer með þær til allra presta landsins, en það hefur að minsta kosti ekki verið gengið vel eftir hjer. Þetta er áreiðanlega vegur til að afla fjár.
Mjer virtist háttv. 6. kgk. þm. spyrja, hvort nefndin vildi, að landsjóður tæki að sjer hælið, eða hvort það yrði ódýrara með því móti. Þetta er óþarfa spurning, þar sem það er bæði tekið fram í nefndarálitinn, og jeg sagði það ótvíræðlega í framsögu minni, að það gæti ekki talizt heppilegt, og að bezt væri, að alt væri óbreytt að þessu leyti. Nefndinni er það einmitt áhugamál, að þessi fagra og mikilfenglega hugsjón, er hófst 1906, lifi, en deyi ekki, að starfið haldi áfram í þeim fagra anda, er til var stofnað. En það er ekki orðið mikið enn úr hugsjóninni 1906, ef landssjóður á nú að leggja til mestan hlutann af rekturskostnaði hælisins.
Allir, er minnzt hafa á brtl. nefndarinnar, hafa talið hana rangláta og tekið í sama streng og háttv. 6. kgk. þm. Jeg var svo heppinn eða óheppinn að sitja hjer á þingi 1909 og talaði þá allmikið við forgöngumenn fyrirtækisins; þori jeg að fullyrða, að hugmyndir þeirra um fjárframlög úr Iandssjóði til Vífilsstaðahælisins, voru aðrar þá en nú. Mjer eru það mikil vonbrigði, er 24 þús. kr. nú þykir oflítið og jafnvel vanvirða að bjóða ekki meira. Jeg sagði þá, að það væri rangt, að setja gjaldið eins lágt og gert var. því að hvað var það, sem við vorum að gera ? Hjer var verið að gera tilraun til að lækna þennan voðasjúkdóm og frelsa mannslíf hjer á landi. En áður var slíkt ómögulegt í sjálfu landinu. Erlendis kostaði vera á heilsuhæli 4–8 kr. á dag, og alls kostaði för út og dvöl ytra svo sem hálft ár í því skyni, að fá lækning á berklaveiki, 1200–1800 kr., svo að hjer var sparnaðurinn ekki lítill fyrir íslenzka sjúklinga, þó að gjaldið væri ekki eins afskaplega lágt og það var sett. (Guðm. Björnssson: En hverir gátu fengið sjer þessar dýru lækningar ytra). Nú þykir mönnum ómögulegt að greiða 250 kr. fyrir 1/2 árs dvöl á heilsuhælinu. En stór væri umbótin, þó að menn hefðu þurft eða þyrftu að gjalda 300 kr., þar sem áður var alls ekki hægt að kaupa frelsi lífi sínu frá þessum sjúkdómi hjer á landi. Það er ekki gott að halda því fram, að umbótin í þessu efni sje ekki stór, þó að sjúklingur sleppi t. d. ekki með minna gjald en 2 kr. á dag. Það var því ekki rjett, er háttv. þm. V. Skf. (S. E.) slöngvaði framan í andlit okkar nefndarmanna, að við hefðum mannslíf á samvizkunni með þessum tillögum, er hjer ræðir um. (Sig. Eggerz: Jeg sagði það í sambandi við brúna). Margir tóku undir það. (a. E. Mannslífin eru einskis virði hjá nefndinni, er ræða er um brúna).
Jeg held, að það sje ekki ástæða til að fjölyrða meir um þetta atriði. Jeg færði framsögumanni gild rök fyrir þessari niðurfærslu. En jeg skal taka það fram, að niðurfærslan er í sjálfu sér ekki aðalatriðið, heldur hitt, að setja einhver takmörk fyrir styrkhækkuninni; (Guðm. Björnsson: Á stjórn hælisins þá sjálf að borga hallann?) Þá koma dagar og þá koma ráð. Hvernig sem það fer, ræðst eitthvað fram úr því. Það vili svo vel til, að jeg er meðlimur þessa fjelags, og jeg veit, að hælið er ekki gróðafyrirtæki, þótt það sje vitanlega prívatfyrirtæki.
Það er ekki ástæða til að svara háttv.þm. Árn. (J. J.) miklu. Hann viðurkendi, að engin áætlun væri til um þessar bátaferðir, og fyrst svo er, þá er sjálfsagt að vera varkár, er þetta er hálfvegis út í loftið. (J. Jónat.: Jeg sagði tilraun. Þetta útí loftið er rangfærsla). Þegar verið er að gera tilraunir, má spilla þeim með ofmiklu fjárframlagi til þeirra. „Sjaldan launa kálfar ofeldi“. Það getur verið, að eigi verði farið sparlega með fjeð, ef það er mikið. Jeg fullyrði raunar ekki, að svo verði gert, en það er meiri hætta á þessu, ef það er mikið fje, heldur en, ef fremur er haldið í fjeð af hálfu þingsins. En það eru engin gögn komin fram,. er sanni, að hærra styrks þurfi, en hjer er lagt til. Ef mjer væri sýnt fram á slíkt, er sjálfsagt, að jeg væri samþykkur hærri styrk.