05.09.1913
Efri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Sigurður Eggerz:
Að því er snertir Breiðafjarðarbátinn, vil jeg leyfa mjer að taka það fram, að af þessum 9000 kr., sem farið er fram á að veita, er ætlazt til að 1000 kr. gangi til mótorbáts, og yrði því upphæðin, sem gengi til Breiðafjarðarbátsins sjálfs ekki nema 8000 kr. Ef nú brtill. nefndarinnar yrði samþykt, þá mundi báturinn ekki fá nema 6000 kr., og er það minna en veitt var á síðasta fjárhagstímabili. Jeg vil endurtaka það, sem jeg gat um í dag, að aðalástæðan til þess, að farið er fram á, að þessi styrkur verði hækkaður, er sú, að Breiðfirðingar vilja sjálfir fá umráð yfir bátsferðunum, svo að kaupmenn hagi þeim ekki eftir eigin þörfum. Þar að auki má minna á það, að útlit er nú verra með strandferðir, en nokkru sinni áður, og er því ennþá minni ástæða til þess að fara að rýra þessa styrkveitingu. — Um styrkveitinguna til heilsuhælisins þarf jeg ekki að vera langorður, því að háttv. 6. kgkj. hefur þegar flutt langt og skilmerkilegt erindi um það mál. Jeg vona, að flestum hafi skilizt af ræðu hans, að það væri fremur ástæða til að hækka styrkinn en til að lækka hann. Það var sjerstaklega eitt atriði í ræðu hins háttv. þm., sem mjer virtist mjög svo eftirtektavert. Það var það sem háttv. þm. sagði um fátæklingana, sem eiga í stríði við sjálfa sig um, hvort þeir eigi að meta meira sjálfstæði sitt eða lífið. Jeg veit, að þetta er satt, margur fátækur maður er svo skapi farinn, að hann vill heldur leggja líf sitt í hættu en komast á sveitina. — Þá er ein brtill., sem jeg gleymdi að minnast á seinast, það er tillagan um styrk til bátaferða frá Vík til Vestmanneyja og Stokkseyrar. Háttv. framsm. sagði, að hjer væri um mótorbátastyrk að ræða. Það getur verið, að svo fari, en það er þó meining mín og margra annara, að reyna ætti að útvega stærri bát, ef hægt væri. Jeg vil í þessu sambandi leyfa mjer að benda á, að samgöngumálanefndirnar hafa ekki sjeð sjer fært að gera neina tillögu til þess að bæta úr hinum tilfinnanlega samgöngu í skorti á suðurströnd landsins. Samgöngurnar við Vík eru mjög slæmar, og er það þeim mun óþægilegra, sem þar eru 3 eða 4 stórar verzlanir, sem hafa mikil viðskifti, bæði í Skaftafellssýslum og í Rangárvallasýslu. Jeg vona því, að háttv. deild sjái, að hjer er ekki farið fram á of mikið.
Jeg skildi svo orð hins háttv. framsm. að hann vildi halda því fram, að jeg færi rangt með það, að 2 háttv. þm, í þessari deild hefðu mælt fram með brúnni á Jökulsá á Sólheimasandi á þinginu 1911. Jeg gat þess í ræðu minni, að annar þeirra hefði sagt, að með því að samþykkja brúarlögin, skuldbindi alþingi sig til þess að veita fje til brúarinnar. Og að hinn, — háttv. núverandi framsm. fjárlaganefndarinnar, — hefði sagt, að sjálfsagt væri, að brúin yrði gerð sem fyrst. Háttv. framsm, getur ekki hnekt því, að þetta er rjett hermt. En nú er annað fjárhagstímabilið að byrja frá því er lögin voru samþykt, og er því tími til kominn að binda enda á þetta loforð. Í fyrra voru samþykt hjer á þinginu tillög, sem veita landssjóði mjög miklar tekjur og hafa því menn þar eystra gert sjer góðar vonir um, að nú mundi ekkert því til fyrirstöðu, að þeir gætu fengið brúna. Mig minnir, að háttv. framsm. hafi einhvern tíma sagt, að alþingi ætti að hafa þá meginreglu að brúa eina stórá á hverju fjárhagstímabili. Stjórnin hefur nú lagt til, að Eyjafjarðará yrði brúuð, en jeg hygg, að allir sanngjarnir menn hljóti að vera samdóma um, að meiri nauðsyn beri til þess að brúa Jökulsá á Sólheimasandi. Jeg get ekki skilið, að það sje ástæða á móti brúnni, þótt Vík nú loksins eigi að komast í símasamband. Hitt er meiri furða, hvað síminn kemur seint þangað austur. Og ekki get jeg heldur sjeð, að það sje gild ástæða á móti brúnni, þótt Vestmannaeyingar fái fyrirheiti um höfn! Háttv. framsm. sagði, að fjárlagur landssjóðs væri svo örðugur, að nefndin sæi sjer ekki fært að leggja það til, að ráðizt væri í þetta fyrirtæki að sinni. En mjer skilst, að það sje hlutverk fjárlaganefndar, þegar svo stendur á, að vinsa úr þau fyrirtæki, sem nauðsynleg eru, en láta hin bíða. Og því getur enginn neitað, sem satt vill segja, að hjer er um eitt hið mesta nauðsynjafyrirtæki að ræða. Jeg veit ekki, hvað landsverkfræðingurinn kann að segja við menn einslega, en hitt veit jeg, að hann hefur lýst því yfir í brjefi til stjórnarráðsins, að hægt væri að gera brúna, og læt jeg mjer nægja að vísa til þeirrar umsagnar hans. Jeg get ekki sjeð, að landsverkfræðingnum komi neitt við í þessu máli, nema hvort mögulegt er að reisa brúna eða ekki. Alt annað ákveður alþingi. Landsverkfræðingurinn hefur sagt, að brúnni stæði ekki hætta af neinu öðru en Kötlu. En nú hefur Katla aldrei komið að vestanverðu, nema aðeins einu sinni. Hjer er því ekki um neina sjerstaka hættu að ræða, að minsta kosti er ekki meiri ástæða til þess að halda, að Kötluhlaup grandi þessari brú, heldur en að brýrnar á Ölfusá og Þjórsá hrynji í jarðskjálftum. Framsm. kastaði því fram, að vel gæti svo farið, að áin hlypi burtu, en brúin stæði eftir. Þetta er alveg rangt, Jökulsá á Sólheimasandi rennur altaf í föstum farveg. Þá sagði háttv. framsm., að það druknuðu ekki flestir menn í verstu vatnsföllunum. En jeg er nú svo heimskur, að jeg held, að það sjeu verstu vatnsföllin, sem flestir drukkna í! — Háttv. þm. Barðstr. talaði í þá átt, að brúin væri nauðsynleg, en vegna erfiðra kringumstæðna landssjóðs taldi hann þó tormerki á að leggja út í fyrirtækið á þessu fjárhagstímabili. Jeg vona samt sem áður, að hann styðji að því, að það verði gert, því að jeg skil ekki annað, en að mjer hafi tekizt að færa bæði honum og öðrum heim sanninn um, að hjer er um bráðnauðsynlega samgöngubót að ræða, sem alþingi ekki má láta dragast að koma í verk.
Jeg get nú látið útrætt um þetta mál. En áður en jeg sezt niður, vil jeg minnast á atvik, sem einu sinni kom fyrir mig. Jeg var fyrir nokkrum árum á ferð í Mýrdalnum og mætti jeg þá manni. sem var að flytja heim á vagni líkið af manni, sem hafði farið í Jökulsá. Sá sem þar lá lík, hafði átt fyrir stórri fjölskyldu að sjá og verið mesti nytsemdarmaður. Jeg hjet því þá með sjálfum mjer, að jeg skyldi gera það lítið sem í mínu valdi stæði, til þess að Jökulsá yrði brúnð. Og jeg vil ljúka máli mínu með þeirri áskorun til háttv. deildarmanna, að þeir reyni að setja sjer fyrir hugskotssjónir alla þá harma og alt það tjón, sem þetta vatnsfall hefur valdið. Ef þeir aðeins gera það, þá er jeg ekki í vafa um, hvernig þeir muni greiða atkvæði um þetta mál.