05.09.1913
Efri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 869 í B-deild Alþingistíðinda. (2172)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Jón Jónatansson:

Það var sjerstaklega ein brtill., sem jeg ætlaði að tala um, en áður en jeg kem að henni, ætla jeg að minnast á 2 brtill. nefndarinnar. Hin fyrri er sú, er snertir Hólaskóla. Jeg er er mjög hlyntur þeirri tillögu háttv. nefndar og vil styðja hana. Það er mjög æskilegt, að núverandi skólastjóri taki að sjer búskapinn á skólajörðinni, og er öllum ljóst, að mikils er um vert, að ekki vanti verklega fyrirmynd, og að búskapurinn sje rekinn í sambandi við búnaðarkensluna.

Það vita allir, hvert gagn er að því hjer syðra, nefnilega á Hvanneyri, en það virðist enn meira varið í að vita, hvernig gengur nyrðra, á Hólum, þar sem staðhættir eru alt aðrir. Þar má reka stórt bú, og þar þarf að vera myndarlegur búskapur, sem verið geti til fyrirmyndar. Þar er alt í niðurníðslu, og því er þessi fjárveiting til peningshúsa bráðnauðsynleg. Síðari brtill. er um hækkun á styrk til kvennaskólans á Blönduósi. Jeg fæ ekki sjeð, á hverju þessi hækkun er bygð, og jeg verð að fá upplýsingar um það, ef jeg á að geta greitt henni atkvæði mitt.

Þá skal jeg snúa mjer að minni eigin brtill., sem er náskyld þeirri, sem fram kom í dag, og í fullu samræmi við hana. Jeg veit, að fjárlaganefndin hefur kynt sjer þær óskir, sem fram hafa komið um, að fá vatnsveitufróðan mann, en meðan hann er ekki fenginn, má nokkuð gera með þessari fjárveitingu til aðstoðar landsverkfræðingi. En með þeirri fjárveitingu er hitt ekki gert, að styrkja einhvern vel Hæfan mann til slíks náms, ef einhver vildi takast á hendur að undirbúa sig til þessa starfs. Jeg veit, að háttv. deild muni samþykkja þessa brtill. mína, þar eð henni er ljóst, hver nauðsyn er á að fá vatnsveitufróðan mann. Hjer liggja fyrir svo mörg og mikil vatnsveitufyrirtæki, er aldrei verða framkvæmd, nema vatnsveitufróðir menn fáist til að rannsaka þau og standa fyrir verkinu, eðs leita þarf út fyrir landssteinana, líklega þá til Danmerkur. En það er ekki nóg að fá mann með sjerþekkingu, hann þarf líka að hafa staðþekkingu hjer. Erlendir fagmenn eru ókunnugir landi voru, en óhjákvæmilegt, að sá maður, sem slík framkvæmd væri falin, þekti hjer alla staðhætti. Nám þetta er dýrt. Það þarf víða að fara til að kynna sjer verklegar framfarir, og fer brtill. mín fram á, að veittar sjeu 800 kr. síðara árið eftir tillögu Búnaðarfjelags Íslands, og er þessi tillaga fram komin til þess, að fje sje til taks, ef á þarf að halda, ef búnaðarfjelagið finnur mann, sem hæfur er til að takast á hendur starfann. Jeg þykist vita, að allir muni sammála um, hve mikil nauðsyn er á, að þessi fyrirtæki verði rannsókuð; fyr vita menn ekki, hvaða möguleikar eru fyrir hendi hjer á landi til vatnsveitu fyrirtækja. Vjer vitum að vísu um mörg slík fyrirtæki, sem komið hefur til tals um, en þau geta verið fleiri. Og nauðsynlegt er að fá að vita, hvernig þau verða gerð kostnaðarminst. Að því er þessa styrkveiting snertir, þá er hún ekki mikil, sjerstaklega er það er haft fyrir augum, að ferðast þarf um og sjá sem mest. Líklega mun ekki heppilegt að nema þetta í Danmörku, þar eð flest mannvirki þar í þessa átt eru í smærri stíl, en hjer getur verið um að ræða, og mun Svíþjóð heppilegri, og þar landshættir líkari því, sem hjer er. Landsverkfræðingurinn hefur bent á að takmarka farveg Markarfljóts og vinna þannig aftur alt það land. sem það hefur spilt. Slíkt fyrirtæki og þetta þekkja menn naumast á norðurlöndum, en landsverkfræðingurinn telur ekki ólíklegt, að þetta sje mögulegt. Sumum kann að virðast, að þetta sje svo langt uppi í loftinu, að of fljótt sje að hugsa um slíkt, en er ekki vitað, fyr en fagmaður er fenginn.

Jeg þarf ekki að fara mörgum orðum um þessa brtill. Öllum er ljóst, að eftir því sem menningin vex, þarf fjölbreyttari krafta, og þörfin verður meiri og meiri á reglulegri sjerþekkingu og ekki nóg að hafa alment verkfræðispróf til þessa.

En jeg vil, áður jeg lýk máli mínu, minnast á brtill. nefndarinnar um, að 24. liður 15. gr. falli burtu. Jeg get ekki felt mig við, að þessi fjárveiting til erindreka sjávarafurða sje feld burtu, og virðist kenna misrjettis, ef það er gert, milli landbúnaðarins og sjávarútvegsins. Það er rjett, að ekki hefur verið gerður að þessu neinn verulegur undirbúningur, en þó getur hann verið nokkur, þótt oss sje ekki kunnugt um. Það er gott, að fje þetta sje fyrir hendi; hjer er ekki um stóra upphæð að ræða, og það kemur ekki til mála að nota það, nema hæfur maður fáist og með fullu samþykki stjórnarráðsins. Get jeg því ekki greitt atkvæði með þessari brtill. háttv. nefndar.

Jeg gæti sagt ýmislegt um ýmsar af þeim brtill., sem fram hafa komið, en vil ekki eyða miklum tíma, þar eð komið er langt fram á nótt. En jeg vil minnast á eitt, sem engin brtill. hefur komið um. Það eru útgjöldin til skógræktar. Víða, þar sem um útgjöld er að ræða, er sýnd! varfærni af fjárlaganefnd og hugsað um að vel sje farið með fjeð, sem veitt er.

En nú er spurningin, hvort skógræktin hjá okkur sje á rjettri leið, en meðan ekki er full vissa fyrir því, að svo sje, er ekki rjett að hækka tillagið. Það vita allir, að byrjað var á þessu máli á þann hátt, sem Jónas Hallgrímsson kallaði að „tyggja upp á dönsku“. Þegar Norðmenu byrjuðu á sinni skógrækt, höfðu þeir þýzka menn sjer til aðstoðar og byrjuðu tilraunirnar með þýzkum plöntum. Kostnaðurinn varð mikill og árangurinn lítill, þar til innlendir menn fóru að starfa að skógræktinni með innlendum plöntum; þá fóru að koma framfarir. En hjer var ekki farið eftir þessari dýrkeyptu reynslu. þeirra. Vjer höfum ekki ráð á að verja til þessa verks nema litlu, og það skiftir mestu í þessu máli, að því fje sje þá vel. varið og skynsamlega, því ef ekki getum vjer mist trúna á, að nokkuð sje hægt að gera í þessu máli. Það er víst engin fjárveiting, sem eins augljóst er um, hve illa er ráðstafað, eins og þessi. Það er byrjað á að verja 10–11 þús. kr. til skógræktar, en þar af fara 7–8 þús. kr. til launa og ráðstafana á þeim 3 þús. kr., sem þá eru eftir og veittar eru alveg út í loftið.

Jeg vona, að háttv. deildarmenn hafi kynt sjer ítarlega ritgerð um skógræktina, sem hjer var útbýtt, eftir Guðmund G. Bárðarson á Kjörseyri. Málið er þar sýnt og rætt frá nýrri hlið. Jeg skil ekki annað, en hún komi hiki á menn um, hvort rjett sje að halda áfram eða ekki. Ritgerðin heitir „Skógræktin og loftslagið“. Samkvæmt henni er það mikið vafamál, hvort vjer erum á rjettri braut í skógræktarmálinu. Það sýnist svo, sem vjer höfum gert okkur tálvonir um skógræktina. Hún sannar ekki, að hjer sje ekki hægt að gera neitt, en hún sýnir, að hjer sje við erfiðleika að stríða. En til þess að halda við skógunum og girða þá, þurfum við ekki þetta mikla skógræktarstjórnar- og skóggæzlubákn. Þessi útlendi maður, sem er fyrir þessu bákni, hefur víst brent sig á að fylgja útlendri reynslu og útlendri venju hugsunarlaust. Jeg sje eigi, að tilraunir í þessum efnum hafi gefizt svo vel, að vert sje að halda áfram að verja miklu fje til skógræktar, nema breytt sje til um meðferð þessa fjár. Það ber alt að sama brunni um það, að við sjeum komnir á villigötur í þessu máli. Við þurfum að fá að vita meira, áður en við höldum lengra áfram, og veitum meira fje til þessa. Það dugar ekki að halda þessu fálmi áfram hugsunarlaust. Á þessu vildi jeg vekja athygli, áður en lengra er farið og fjárveitingin til þessa hækkuð. Jeg hef ekki sjeð neina skýrslu eða reikninga um, hvernig þessu skógræktarfje hefur verið varið. Annars býst jeg við að víkja nánara að þessu við 3. umr., og skal því ekki fjölyrða meira um þetta atriði nú.

Jeg vildi aðeins rjett drepa á brimbrjótinn í Bolungarvík, af því að jeg er kunnugur þessum stað frá yngri árum. Jeg er samdóma háttv. þm. Ísaf (S. St.) um, að hjer sje um hið mesta nauðsynjamál að ræða. Jeg fylgi honum hjer hiklaust að máli. Hann lýsti ástandinu skýrt og skorinort, satt og rjett, og jeg hef engu við það að bæta. Tek að eins undir það sem hann sagði um það.

Þá er einn liður hjer seint á atkvæðaskránni. Nefndin leggur til, að fella burtu lánið til Rangæinga til að kaupa Stórólfshvol fyrir læknissetur. Jeg játa og sje, að það getur verið hættulegt vegna fordæmisins. En eftir skýrslu háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) eru nú ekki nema 9 læknis- hjeruð, þar sem læknir býr í sveit hinir allir í kaupstað. Hjer virðist því ekki mikil hætta á ferðum að þessu leyti, en hinsvegar ei þess að gæta, að þetta skiftir afar miklu fyrir hjeraðið, sem hjer á hlut að máli, því það er óvíst, að Rangæingar fái haldið þeim lækni, er þar er nú, og vel er látinn, og mikilsmetinn þar í hjeraði, ef ekki verður úr þessum kaupum, og það tel jeg illa farið. Jeg greiði; því atkvæði móti tillögu nefndarinnar.