05.09.1913
Efri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 874 í B-deild Alþingistíðinda. (2173)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Steingrímur Jónsson, framsögumaður:
Það er ekki laust við, að fjárlaganefndin hafi fengið nokkrar bakslettur. Jeg skal nú svara því, enda þótt það sje tekið að gerast harla framorðið.
Háttv. þm. Barðstr. (H. Kr.) mintist á myndasafn Einars Jónssonar og spurði, hví nefndin vildi ekki þiggja það. Jeg skal svara því fyrir sjálfan mig og jeg hygg, að mín skoðun sje ekki fjarri skoðun nefndarinnar. Það er ekki rjett, hvorki frá sjónarmiði landsins nje listarinnar að þiggja þetta tilboð. Það gat verið mikið í ráðist að taka á móti safninu og kostaði að líkindum að byggja yfir það. Við höfum hjer eitt fordæmi. Það eru Danir, er þeir fengu safn Thorvaldsens, en þar stóð nokkuð öðruvísi á. En jeg hygg og, að það hefði ekki verið rjett gagnvart list Einars Jónssonar. Það er ekki rjett, að jeg hygg, að kaupa safnið og taka þannig nokkurskonar einkarjett á list hans. Hann berst nú fyrir list sinni og viðurkenning á henni, og við vonum, að honum að síðustu takist að komast á heimsmarkaðinn. Því neitar enginn, að það sje æskilegt, að við getum keypt af honum, en það væri ennþá æskilegra, að aðrar þjóðir keyptu 3–4 listaverk hans, jafnframt því sem við keyptum 1–2.
Þá mintist háttv. sami þm. á þessar 700 kr. til nokkurra manna á Langanesi fyrir greftrun á líkum frá strandi norsks gufuskips 1907 og vildi fá að vita nánar um það. Rjettarspurningin hjer er nokkuð flókin. Þessi maður, er lifandi komst af, gat að vísu gefið nokkra vitneskju, er þar mátti koma að gagni. Á skipinu voru um 20 manns, en ekki nema 15 lík rak, en það varð ekki vitað, hverra lík það voru. Við þetta allt var mikill kostnaður, ekki við sjálfa jarðarförina. Fyrst varð að fá bjargmenn. Þeir urðu að síga ofan í hengiflug með svo miklum háska og þrekraunum, að ótrúlegt mun þykja. Svo varð að flytja líkin 5 mílur til kirkju yfir hinar mestu torfærur. Við þetta bætist svo sjálfsagður jarðarfararkostnaður. Jeg held, að það verði ekki annað sagt, en reikningar fyrir þetta sjeu sanngjarnir, og að það sje sanngjarnt, að þeir Langnesingar fái þetta goldið og þurfi ekki að þola kostnað þann, er þetta hefur bakað þeim. Jeg vildi skýra frá þessu eftir áskorun háttv. þm. Barðstr. (H. Kr.).
Þá kem jeg að háttv. þm. Ísaf. (S. St.). Þótt undarlegt megi virðast, gat þessi ræða hans, svo vel sem hún var bygð hún var í rauninni dálítið listaverk — ekki sannfært mig. Það hefur víst stafað af því, að jeg var áður orðinn sannfærður um nauðsyn brimbrjótsins, og að það beri að styrkja þetta fyrirtæki. Hún staðfesti eða styrkti meira að segja þá skoðun mína, að það bæri að setja takmörk fyrir þessum styrk. Við höfum ekki ótakmarkað fje yfir að ráða, og það veit enginn betur en háttv. þm. Ísaf. (S. St.). En hvar á að setja takmörkin? Jeg gat þess, að styrkurinn mætti, að minni skoðun, ekki fara yfir 1/3 alls kostnaðarins. Jeg gat þess og, að það mætti hugsa sjer, að svo stæði á, að rjett væri að víkja frá þessari. meginreglu, t. d. ef um lífsnauðsyn er að ræða, þörfin afar brýn, og einhver af þessum átakanlegu ástæðum, sem háttv. þm. Ísaf. (S. St.) lýsti með svo miklum krafti, er fyrir hendi, og ágóðinn hins vegar mjög óvís og getan litil. Þá gæti verið ástæða til að hlaupa meira undir bagga, en þessi meginregla heimilar. En hjer er þess að gæta, að efnamenn eiga í hlut. Að sögn háttv. þm. Ísaf (S. St.) afla þeir frá 1/2–1 milj. á ári. Það sjest á þessu, að Bolvíkingar hafa nokkurt bolmagn, og að þeir mega við því, að nokkrir skattar sjeu lagðir á slíkar tekjur. Þeir hafa sýnt það síðustu árin, er þeir hafa fyrst lagt á sig 1 kr. skatt (á hvern hlut), svo hækkað hann upp í 2 kr., og jeg býst við, að þeim vaxi innan skamms svo þroski og menning, að þeir leggi á sig 3 kr. skatt. Hjer er ekki að ræða um hjálp til neinna þurfamanna. Þessi brimbrjótur á að kosta 80 þús. kr. eftir ágizkun Krabbes. Með því að byggja þennan brimbrjót spara þeir sejr 3000 dagsverk á ári, eftir því sem háttv. þm. (S. St.) segir, og beztu dagarnir gefa um 40 kr. kr. í hlut. Hjer sjest því ekki knýjandi nauðsyn til þess, að landssjóður gangi lengra en í öðrum tilfellum.
Þá er sagt, að Ísfirðingar fái svo lítið úr landssjóði, þar sem þeir leggja svo mikið til hans. Eg get ekki sjeð, að þetta sje á rökum byggt, að minsta kosti hefur það ekki átt sjer stað síðan jeg kom á þing, að þingið hafi haldið í við þá, og það hlýtur háttv. þm. Ísaf. (S. St.) að viðurkenna.
Háttv. þm. Ísat. (S. St.) kvað djarft að breyta þessu, þar sem þessi fjárveiting hefði verið samþykt með svo miklum meiri hluta í Nd. En Ed. má ekki láta slíkum brotum á meginreglum við þess konar fjárveitingar ómótmælt. Hjer er í sjálfu sjer ekki greitt atkvæði um upphæðina. Það er skilyrðið, sem er aðalatriðið, að minsta kosti fyrir mjer. Jeg væri ekki mótfallinn þessum 10,000 kr., ef styrkveitingin væri bundin venjulegu skilyrði.
Háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) tók í sama streng og háttv. þm. Ísaf. (S. St.) um brimbrjótinn. Hann kvað verða að gera greinarmun á því, er um hafnargerðir eða þess háttar mannvirki væri að ræða, hvort það væri aðallega verzlunarstaður eða fiskiveiðistöð, sem í hlut ætli. En hvaða verzlunarstaður er ekki aðallega fiskiveiðistöð. Það er ekki gott að greina þar á milli. Er höfnin á Vestmannaeyjum ekki í veiðistöð og verzlunarstað, þó aðallega veiðistöð? Og höfnin í Reykjavík, — þar eru bæði verzlun og mikil veiði stunduð. Á Blönduósi er reynt að bæta höfn vegna verzlunarinnar, og af því þar er verið að reyna að bjarga lífi manna; þar í ósnum hafa margir druknað.
Háttv. 6. kgk. (G. Bj.) sagði, að sjódruknanir væru þyngsti skatturinn, er á þjóðinni hvíldi. Þetta eru mikil sannindi. Það hefur verið svo, að kalla frá alda öðli. En af þessum sannindum leiðir ekki, að við eigum að fleygja fje frá okkur takmarkalaust og skilmálalaust. Ef fjeð væri nóg, væri ekkert talið því til foráttu að byggja alla höfnina og byggja hana þegar í stað. En af því að fjeð, er við ráðum yfir, er af skornum skamti, verðum við hjer sem annarsstaðar að halda sparlega á, og láta okkur nægja, að leggja sómasamlega til fyrirtækisins sem hjer er gert. Hef jeg svo fullrætt um þetta mál, og hygg, að jeg hafi hjer að mestu talað fyrir hönd meiri hluta nefndarinnar.
Háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) mintist á orðabók Jóns Ólafssonar og ávítti tillögur nefndarinnar um það efni. Jeg skal undir eins taka það fram, að mjer nje nefndinni er ekki kappsmál um fyrri lið brtill. En það er í raun og veru óviðfeldið, að styrkurinn standi, eins og hann stendur í fjárlögunum, alveg skilyrðislaust. Því verður ekki neitað, og eins er þetta; „og 2. greiðsla“ óviðfeldið. Og ef nefndarálitið er lesið gaumgæfilega, sjest, hvert stefnt er, við hvað er átt. Það er sagt um skáldin, að þeir hafi rjett til að treysta því, að þeir haldi áfram að njóta árlegs styrks úr landssjóði, meðan þeir hafa ritstörf fyrir aðalatvinnu, og meðan þeir með öðrum orðum brjóta hann ekki af sjer, og sama er að segja um Jón Ólafsson. Nefndin er ekki í vafa um, að upphæðin verður að haldast meðan hann brýtur hana ekki af sjer, og því er endirinn á fyrri málsgrein orðabókarliðsins óviðeigandi. Það er með öllu ónauðsynlegt, að þessi. orð „1. og 2. greiðsla af 8 ára styrk“ standi þar. Jeg veit raunar, að lík skilyrði tíðkast í fjárlögum annara landa, en það er helzt í verklegum efnum. Þá skal jeg minnast á skilyrðið um arkafjöldann. Höfundurinn á nú svo mikið til af óprentuðu handriti, að honum veitir varla erfitt að fullnægja þessu skilyrði. En hann þarf ekki að hafa það prentað eða í prentsmiðjunni. Það þarf að eins að skila á ári, sem samsvarar 40 prentuðum örkum, og stjórnarráðið hefur eftirlit með því. Annars felst jeg að líkindum á þá brtill., er háttv. 6. kgk. (G. B.) boðaði til 3. umr., að bætt verði inn í orðunum „til uppjafnaðar“.
Þá eru Stórólfshvolskaupin. Nefndin fær ekki sjeð, að það sje viturlegt að styðja sýslufjelögin til kaupa á jarðeignum eins og þessari, enda þótt það geti verið góð „speculation“ fyrir sýslurnar. Slíkt gæti dregið slæman dilk á eftir sjer.
Jeg skil ekki, að það sjeu ekki fleiri læknishjeruð, þar sem læknirinn situr í sveit, heldur en 9. Jeg veit að minsta kosti, að í minu kjördæmi hafa 3 læknar sveitabústaði. — H. þm. Strand. mintist á athugasemd nefndarinnar við fræðslustyrkinn, og sýndist misskilja hana. Það stendur í 22. gr. fræðslulaganna sem ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir landssjóðsstyrk, að sveitafjelögin leggi til lögskipuð kensluáhöld. Það er því ekki nema til málalengingar að vera að taka þetta ákvæði upp í fjárlögin. Viðvíkjandi hinni brtill. er þess að geta, að fræðslumálastjórinn: hefur gefið þá upplýsingu, að stundum bærust honum grunsamlegir fræðslukostnaðarreikningar, sem torvelt væri að átta sig á. En þar sem landssjóðsstyrkurinn er ekki nema tæpur þriðjungur af öllum fræðslukostnaði sveitanna, þá getur það ekki komið nema örsjaldan fyrir, að þetta ákvæði komi hart niður. Vitaskuld getur það orðið í einstökum tilfellum, en nefndin vonar, að þau verði fá. Þar að auki geta menn myndað fræðslusjóði, þar sem þeir þegar eru ekki til, og geta þá þeir gefið í þá, sem eitthvað vilja láta af hendi rakna til kenslumála í sveit sinni. Þá mintist h. þm. á eftirlitið með heimafræðslunni og Ijet lítt yfir því. Jeg þekki þó sveitir norðanlands, þar sem það hefur gefizt vel, en vera má, að sú sjé ekki reynsla manna alstaðar. — Þá mintist h. þm, á niðurfærslu styrksins til Hannesar Þorsteinssonar. Jeg skal játa, að margt mælir með því, sem hann og h. þm. N.-Múl. hafa haldið fram, að ekki beri að nema þann styrk við neglur sjer. En þess verður að gæta, að síðan alþingi síðast veitti þennan styrk, hefur Hannes Þorsteinsson fengið annað launað starf, sem samrýmist vel við það verk, sem hann á að vinna fyrir styrkinn. Þótt brtill. nefndarinnar væri samþykt, mundi hann hata um 3000 kr., og verður það að álítast fullsómasamlegt. — Viðvíkjandi bifreiðunum eða sjálfrenningunum hef jeg áður tekið það fram, að það sem fyrir nefndinni vakti, var aðeins að gera tilraun með þessi samgöngufæri. Þó að menn sjeu nú farnir að hugsa um járnbraut austur um sveitir, þá er alt eins mikil ástæða til þess að gera tilraunir með bifreiðarnar fyrir það, því að það mun alstaðar vera reynsla, að þær dafna ágætlega við hliðina á járnbrautunum.
Þessu næst vil jeg minnast á þær brtill., sem komið hafa frá einstökum þingmönnum. Háttv. þm. N -Múl. á brtill. á þgskj. 728 um að hækka styrkinn til þess að semja skrá yfir handritasafn Landsbókasafnsins og halda áfram spjaldskrá safnsins upp í 2000 kr. Jeg get fyrir hönd nefndarinnar lýst því yfir, að hún er meðmælt þessari brtill. Sami hv. þm. flytur brtill. um styrk til dr. Guðmundar Finnbogasonar til ritstarfa. Nefndin hefur ekki tekið neina ákvörðun um afstöðu sína til þessarar brtill., en jeg vil lýsa því yfir fyrir mitt leyti, að jeg er henni hlyntur. Þá er brtill. frá sama h. þm. á þgskj. 731, um að veita. Landskjalasafninu 1000 kr. hvort árið til þess að láta afrita og ljósmynda handrit Íslandi viðvíkjandi í erlendum söfnum. Þessi fjárbeiðni hafði borizt nefndinni, en nefndarmenn voru ósammála um hana, og jeg fyrir mitt leyti er henni mótfallinn. — Þá er brtill. frá háttv. þm. Barð. um að færa styrkinn til Guðm. Guðmundssonar skálds upp í 1000 kr. hvort árið. Nefndin er mótfallin þessari tillögu; vill yfir höfuð ekki hækka skáldastyrkina frá því, sem hún hefur gert ráð fyrir í brtill. sínum. — Þá er brtill. frá h. þm. Árn. um 800 kr. styrk síðara árið handa einhverjum efnilegum manni, ef fengist, til þess að leggja stund á vatnsvirkjafræði. Nefndin lítur svo á, að það hafi verið samkomulag milli nefndarinnar í Nd. og stjórnarinnar, að fyrst um sinn væri látið sitja við það, að landsverkfræðingnum væri skipaður aðstoðarmaður, og skyldi svo landsverkfræðingurinn hafa umsjón með vatnsveitufyrirtækjum. Það, sem menn kunna að vilja gera frekar í þessu máli, verður að bíða betri tíma, og rjettast er að vísa því til stjórnarinnar og búnaðarfjelagsins. Ef einar 800 kr. eru nægilegur styrkur, þá ætti búnaðarfjelagið að geta hlaupið undir bagga. — H. þm. Barð. á brtill. á þgskj. 709 um að láta laun Ásgeirs efnafræðings Torfasonar sitja við það, sem nú er. Nefndin hefur að vísu ekki tekið afstöðu til þessarar brtill., en jeg býst við, að meiri hluti hennar sje brtill. mótfallinn. Jeg álít, að efnafræðingur landsins eigi að vera svo vel launaður, að hann geti komizt sæmilega af. — Sá maður, sem nú skipar þetta embætti, er fjölskyldumaður, og það er víst bezt að gera ekki ofmikið úr þeim tekjum, sem hann hefur af vinnu rannsóknarstofunnar fyrir prívat menn, því að þær munu ekki fara fram úr 150 kr. — Þá er brtill. frá sama h. þm. um, að bifreiðin eigi að flytja ókeypis póst austur, ef fje verður veitt til hennar. Sú brtill. álit jeg að geti Ekki staðizt, því ferðirnar verða ekki reglulegar, þar sem hjer er aðeins um tilraun að ræða. Þá er brtill. frá sama h. þm. á þgskj. 709. H. þm. Strand. hefur þegar minzt á þessa brtill., og er jeg honum fyllilega sammála. Það væri neyðarlega illa farið, ef þessir menn gætu ekki fengið neinar skaðabætur fyrir hrakninga sína, þar sem landstjórnin hafði ekki bolmagn til að rjetta hlut þeirra fyrir enskum dómstólum. Úr því svo illa tókst til, má ekki minna vera, en að alþingi sinni þessari hóflegu beiðni þeirra. Jeg hef heyrt sagt, að þeir hafi þurft að borga 400 kr. beinlínis úr sínum eigin vasa á leiðinni. Loks er brtill. frá h. þm. Strand. og hv. þm. Árn., að styrkurinn til Sveins Oddssonar til þess að halda uppi bifreiðarferðum austur um fjall falli burtu. Nefndin vill halda því fram, að rjett sje að gera þessa tilraun, til þess að vita, hvernig vagnarnir gefast hjer, hvað langan tíma árs hægt sje að nota þá o. s. frv.
Jeg held jeg hafi þá minzt á allar brtill. og svarað flestum mótbárum, sem fram hafa komið gegn tillögum nefndarinnar. En áður en jeg sezt niður, vil jeg minnast á nakkur atriði í ræðu h. 2. þm. Árn. Hann mintist nokkuð á verzlunarerindrekann fyrir sjávarafurðir. Út af því, sem hann sagði, vil jeg taka það fram, að það gegnir alt öðru máli um þennan erindreka, heldur en um erindrekann fyrir íslenzkar landafurðir. Það hefur lengi verið undirbúið, að fá erindreka fyrir landafurðirnar, og kostað miklu til, og þar að auki ætla samvinnufjelögin að greiða eigi minna en helming launa hans. En það sem hjer er farið fram á, er í raun og veru ekkert annað en viðbótarstyrkur til Fiskifjelags Íslands, þannig, að það fái 16,500 kr. í staðinn fyrir 12,500 kr. Fjelagið er ungt; og styrkurinn, sem því nú er ætlaður, er svo ríflegur, að ekki virðist þörf á að bæta við hann. Gamall þingmaður hefur bent mjer á, að það hafi liðið þó nokkur ár frá stofnun búnaðarfjelagsins, þangað til það fjekk jafnmikinn styrk. — Þá mintist hinn sami h. þm. nokkuð á skógræktina og fje það, sem til hennar er veitt. Nefndin hafði ekki tíma til að kynna sjer öll þau mörgu skjöl, sem fyrir lágu um það mál, en ljet sjer nægja, að athuga nefndarálit Nd. og gömlu fjárlögin. Meiningin er, að 4000 kr. gangi fyrra árið til þess að girða skóglendi á Suðurlandi, líkt og áður hefur verið gert á Norðurlandi. Fyrirkomulag skógræktarinnar er annars ákveðið með lögum, og er svo fyrirskipað, að einn skuli vera skógræktarstjóri og fjórir aðstoðarmenn hans, og eru laun þeirra alls 7000 kr. á ári. — Annars skal jeg ekki deila við hinn h. þm. um þetta mál, því hann hefur betra vit á því en jeg. En það verð jeg að telja mikilsvert, að einhverjir þeir menn alist upp, sem þekkingu hafa á skógrækt, og þó að þeir kunni að byrja með útlendum og skökkum skoðunum, þá treysti jeg því, að þeir verði sannfróðir af reynslunni. Síðan skógræktin komst á laggirnar, hefur skógum farið mikið fram, að minsta kosti í Þingeyjarsýslu. Í skógræktinni verður að reikna með mannsöldrum, en ekki árum. Hjer er aðeins um litla byrjun að ræða, en vonandi sjá barnabörn vor ávextina af henni.