05.09.1913
Efri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (2175)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Þórarinn Jónsson:
Jeg vildi helzt falla frá því að tala í þetta skifti, því að það, sem jeg segi, það tala jeg að mestu leyti upp úr svefni. En ástæðan til þess, að jeg tek nú til máls, er sú, að jeg vil skýra fyrir háttv. deildarmönnum tvær fjárveitingar, sem fjárlaganefndin hefur tekið upp, aðra til aukningar styrks Blönduósskóla og hina til bátauppsáturs við Blönduósbryggju. Geri jeg þetta útaf fyrirspurnum 2 háttv. þingmanna, þm. V.-Sk. (S. E.) og 2. þm. Arn. (J. Jónat.). Einkum þó hins síðarnefnda; geri jeg þetta ekki af því, þó þeir áliti mikið hrökkva til mín, kjördæmis, heldur er mjer ljúft að upplýsa um þetta nokkru frekar, en háttv. framsögumaður gerði. Vænti jeg að geta orðið stuttorður um þetta.
Jeg ætla þá fyrst að minnast á kvennaskólann, og vil jeg þá sjerstaklega taka nokkuð fram um:
1. Skólanauðsynina.
2. Kenslukrafta skólans,
3. Fjárhag skólans.
Hann hefur nú staðið um 30 ár og var fyrst borinn uppi af Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum, en nú um langt árabil af Húnavatnssýslu einni. Jeg skal geta þess, að nú eru einungis 2 kvennaskólar á landinn. sem styrktir eru af landssjóði, skólinn í Reykjavík og skólinn á Blönduósi og svo matreiðsluskóli á Ísafirði, eitthvað lítið eitt. Jeg verð að líta svo á, að skólinn á Blönduósi sje mjög nauðsynlegur. einkum þegar litið er til þess, hvað kostar að sækja skólann hjer í Reykjavík, því það má kallast nærri ókleyft. Menn, sem hafa sent dætur sínar í Reykjavíkurskólann. hafa sagt mjer, að það hafi kostað um 4–500 kr. yfir veturinn, en að sækja skólann á Blönduósi kostar einungis 135 kr. yfir veturinn. Skólann í Reykjavík geta því ekki aðrar stúlkur notað en þær, sem þar eiga heima, og svo efnaðar stúlkur utan af landi, en þær, sem efnaminni eru, geta það ekki, og þurfa þær þó að nema eins og hinar, því líklega vill enginn halda því fram, að hinar fátækari stúlkur í landinu þurfi ekki að búa sig undir að verða húsmæður eins og hinar, og það því fremur, sem renna má getum til þess, að þær vanalega fái lakara uppeldi. Þörfin á Blönduósskólanum er því mjög mikil, enda hefur til þessa verið mikil aðsókn að honum, verið sóttur úr öllum hjeruðum landsins, og ætið fullur af nemendum. Þá er kenslan í skólanum. Forstöðukonan fyrir skólanum, frú Elín Jónsson er alkunn að því, að hafa mjög gott vit á kenslu og kenslufyrirkomulagi, jafnt þeim konum, sem það hafa bezt hjer á landi, og hefur hún lengi veitt skólanum forstöðu, og óska jeg og vona, að hann megi njóta hennar enn sem lengst. Aðrar kenslukonur hafa mentað sig bæði hjer á landi og erlendis, og má því segja, að kenslukraftar skólans sjeu í bezta lagi. Skólahúsið á Blönduósi er mjög vandað og gefur ekkert eftir skólahúsinu hjer. Svo vil jeg þá drepa lítið eitt á fjárhag skólans, sem mun helzt sannfæra menn um, að hann þurfi á styrk að halda. Fjárhagnum er þannig varið, að eftir þeim reikningi, sem hjer liggur fyrir, er allur kostnaður við rekstur skólans 5478 kr. 78 aurar, og þegar þar við bætast rentur og afborganir af lánum, 11 þús. kr. láni úr viðlagasjóði, í þús. kr. láni úr landsbankanum og 2 þús. króna skuldum annarsstaðar, eru öll útgjöld skólans kringum 7500 kr. Fæðisgjald námsmeyja og styrkur frá landssjóði og sýslusjóði er samtals 5972 kr. og er tekjuhallinn því nálægt 1500 kr. Sýslan hefur lagt skólanum til um 800 kr. árlega og nú er þess krafizt, að hún leggi fram 900 kr. árlega gegn þessari hækkun. Af því, sem jeg hjer hef sagt, vona jég, að þingmenn sjái, að skólinn þarf nauðsynlega á styrk úr landssjóði að halda. Fyrirkomulag skólans var upprunalega á þann hátt, að áður var þar mestmegnis realskólakensla,. en nú hefur þessu verið breytt þannig, að verkleg kensla hefur mjög verið aukin, en mjög dregið úr realkenslunni. Hefur sýslunefnd Húnavatnssýslu álitið rjett að færa kensluna í þetta praktíska horf, til þess skólinn gæti því fremur orðið húsmæðraskóli. Er alt til þess gert, að nemendur læri þar aðallega það, sem mest þörf er á í hinu daglega lífi, til þess að nemendur geti orðið góðar húsmæður og mæður. Verður unnið að því að færa skólann í þetta horf, eins og kostur verður á. Svo held jeg að ekki þýði að fjölyrða frekar um þennan skóla, og vil jeg því snúa mjer að bátauppsátrinu á Blönduósi. Blönduós hefur haft ilt orð á sjer fyrir það, að lending er þar mjög vond og hefur það verið mjög bagalegt fyrir sýsluna, og jafnvel fyrir alt landið, því að skip hafa oft orðið að bíða þar dögum saman og oft verið með marga farþega, sem auðvitað hafa líka orðið að bíða. Vissi jeg til þess einusinni, að skip með fjölda farþega varð að bíða þar um viku eftir afgreiðslu. Síðan bryggjan kom hefur þetta breyzt mikið, en þó eigi nægilega, því að við hana er ekki hægt að vernda báta ef ilt er í sjó. Þegar fært er inn í ósinn, er þeim lagt inn í Blönduárós, eða dregnir upp á sandinn að sunnanverðu, en stundum er þetta eigi hægt, ef brim er, og verður þá að setja bátana upp í fjöruna að norðanverðu. En þar hagar svo til, að framanundir flutningabrautinni, sem liggur frá bryggjunni, er steyptur kantur sem ómögulegt er að setja báta upp á, en fjöruborðið fyrir neðan svo mjótt, að engum bát er óhætt. Þessi vandræði með bátana eru mjög tilfinnanleg og urðu þau nýlega til þess, að bátur kaupfjelagsins brotnaði. Af þeim ástæðum, sem jeg nú hef talið, er farið fram á, að veitt verði fje til þessa bátauppsáturs. Geir Zoega verkfræðingur hefur áætlað, að þetta muni kosta um 3000 kr., og fjárlaganefndin hefur haldið fram því principi sínu, að veita ekki meira en þriðjung til slíkra framkvæmda, og hefur því verið fylgi hjer.
Af þessu, sem fram er tekið, hef jeg getað sannfært háttv. fjárlaganefnd um, að hjer væri þörf fyrir hendi. Þetta eru nauðsynjamál. Og á Blönduósi er stórt kaupfjelag, er vill hjálpa til að koma bryggjunni í verk, og sýslunefnd AusturHúnavatnssýslu samþykti á fundi sínum í vetur, að leggja fram 600 kr. til undirbúnings þessu máli.
Jeg vona, að háttv. þm. geri hjer alt með rólegri yfirvegun og skynsemi, en ekki hlaupi eftir tilfinningum eða æsingi, er mjer finst að hjer hafi um of verið gjört. Of mikið talað til tilfinninga manna til þess að reyna að láta hana ráða úrslitum. Það hefur verið talað um árnar sem opnar grafir o. fl. því um líkt. Jeg vil ekki vera að hefja slíkar ræður, þó að mjer væri það hinsvegar hægt, því það er skamt síðan, að 4 lík skoluðust upp á Blönduóssand og fórust mennirnir allir milli skips og lands. Jcg gæti því talað með sama rjetti og háttv. þm. Ísaf. (S. St.) um dauða menn, lífsháska og annað það, sem máli manna á að gefa áherzlu. En jeg vil fremur tala um þörf hinna lifandi og sleppa þeim dauðu.
Jeg hef ennfremur heyrt nokkra segja, að þarna ætti ekkert að gera, þarna væri engin höfn. En þar til er því að svara, að fyrst og fremst er höfnin ekki eins slæm og af er látið, eins og jeg hef áður sýnt fram á. Og í öðru lagi væri þeim mun meiri ástæða að bæta höfnina, sem hún er verri.
Jeg skal svo ekki lengja umræðurnar frekar. Jeg ætlaði í öndverðu alveg að sneiða mig hjá þeim.