05.09.1913
Efri deild: 47. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (2178)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Steingrímur Jónsson, framsm:

Jeg verð að segja örfá orð um það, sem h. þm. V.-Sk. (S. E.) bar mér á brýn, að jeg bryti mínar eigin grnndvallarreglur. Jeg mundi ekki hafa svarað neinu, ef þessum ásökunum væri beint að mjer einum, en af því þeim er beint að allri fjárlaganefndinni, að minnsta kosti 4 úr henni, þá finst mjer það sje bein skylda mín, að mótmæla þessu harðlega.

Jeg gat þess áður, að h. nd. hafði samþykt, að 6 brýr skyldi byggja á næsta fjárhagstímabili, og mega sumar af þeim heita stórbrýr, að minsta kosti þegar miðað er við það, hvað stórbrýr voru kallaðar fyrir nokkrum árum, þannig er áætlað, að brúin á Eystri-Rangá kosti 18000 kr., en brúin á Skjálfandafljót kostaði ekki nema 20000 kr., svo munurinn er ekki mikill. Hver, sem vill lita á þetta, sjer, að hjer er um ekkert grundvallarreglubrot að ræða; hjer er bæði veitt fje til að byg;,ja allstórar brýr, og þegar talið er saman alt fjeð, sem í fjárlögunum er ætlað til brúagerða þá má það heita stórfje, og nægilegt til að byggja fyrir eina stórbrú. Þetta hafði jeg tekið fram áður, en af því h. þm. (S. E.) hefur engan gaum gefið því, tek jeg það upp aftur, um leið og jeg vísa á bug öllum ákúrum til mín og nefndarinnar fyrir það, að vjer sjeum að leika okkur að því að brjóta grundvallarreglur, sem við þykjumst fylgja.

Annað atriði mun jeg og minnast á. Nefndin hefur lagt til, að felt væri burtu orðið „venjulega“ úr skilyrðunum fyrir veitingu húsaleigustyrks til nemenda háskólans og mentaskólans. Nefndinni fanst þörf á, að gera skarpan man á utanbæjarnemendum og innanbæjar; en verið getur, að stöku sinnum geti það komið hart niður, að útiloka innanbæjarnemendur með öllu frá húsaleigustyrk, og mun jeg, og jeg hygg, fleiri samnefndamenn mínir, fús á að koma með breytingartillögu, er geri það unt, að veita þeim innanbæjarnemendum húsaleigustyrk, sem líkt stendur á með og utanbæjarnemendum. Þá er að minnast nokkuð á kostnaðinn við greftrun líkanna, sem við Langanes ráku. Hjer er ekki um venjulegt skipsstrand að ræða, skipið hvarf með öllu, en líkin ráku í land. Málið gat því ekki gengið þá leið, sem strandmál ganga:

Jeg þarf ekki að svara mörgu því, sem talað var um dómkyrkjuna í Reykjavík. Það liggur í augum uppi, hve miklu dýrara það yrði að byggja nýja kyrkju, en að kosta viðgerð þá, sem hjer er gert, ráð fyrir.

Út af því, sem h. þm. Barðstrendinga (H. Kr.) var að tala um borgunina til þeirra Guðmundar sýslumanns Björnssonar og Snæbjarnar hreppstjóra Kristjánssonar, þá verður hún ekki öðruvísi en lítilfjörleg viðurkenning þingsins fyrir því, að þeir hafi orðið fyrir órjetti, sem þeir ættu skilið að fá bætur fyrir. Jeg segi það satt, að ef jeg hefði orðið fyrir sama órjetti hjer á árunum í viðureign minni við enska. botnvörpunginn, sem sýslumaður Barðstrendinga varð, þá mundi jeg sleitulaust hafa leitað rjettar míns, og viljað fá rækilegar skaðabætur.