06.09.1913
Efri deild: 48. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)

21. mál, íslenskur sérfáni

Steingrímur Jónsson:

Jeg gat eigi orðið samferða meðnefndarmönnum mínum í þessu máli, og hef jeg gert grein fyrir áliti minu á þgskj. 716. Það mun vera vilji manna, að umræður verði ekki langar og vísa jeg því að eins til umsagnar minnar. Jeg ætlaði að koma fram með rökstudda dagskrá, en þar eð hún nú þegar er komin fram úr annari átt, þá mun jeg ekki bera mína fram við þessa umræðu, en greiða atkvæði með hinni rökstuddu dagskrá.

Hin rökstudda dagskrá var svo borin upp til atkvæða, og var hún feld með 7 atkvæðum gegn 6.