06.09.1913
Efri deild: 48. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í B-deild Alþingistíðinda. (2190)
86. mál, aðflutningsbann á áfengi
Sigurður Stefánsson:
Eins og sjest á þgskj. 679, þá hef jeg skrifað undir álit nefndarinnar með fyrirvara. Jeg var ekki vel frískur, og nenti því ekki að skrifa sjerstakt nefndarálit. Minn fyrirvari þýðir það, að jeg get ekki fallizt á brtill. nefndarinnar, allra sízt á breytinguna við 1. gr., og líku máli er að gegna um breytinguna á 2. gr. Jeg get ekki sannfærzt um, að þessar málaleitanir frá frönsku stjórninni sjeu þess eðlis, að þær knýi löggjafarvaldið til þess að breyta gildandi lögum. Þegar þeir menn, sem hjer er um að ræða, komu hingað til lands, þá þektu þeir þessi lög, og það virðist því varla knýjandi ástæða til þess að veita þeim undanþágu frá þeim, enda þótt jeg viti, að þeir njóta jafnan mikilla sjerrjettinda. Það er og eðlilegast, að þeir lifi undir lögum þess lands, sem þeir búa í. Jeg get því ekki álitið, að það sje nein ókurteisi, þótt við finnum ekki ástæðu til að breyta lögunum til þess, að þeir og þeirra familíur geti drukkið vín, sem þeim þykja góð. Það eru svo margir, sem verða að breyta heimilisvenjum sínum vegna laganna, að það er varla ástæða til að gera hjer undanþágu. Auk þess, sem jeg nú hef sagt, má einnig geta þess, að þessir heiðruðu herrar eru ekki hjer í okkar þágu, heldur sinnar þjóðar, og þótt það komi ekki beint þessu máli við, má geta þess, að sendiræðismaður þeirrar þjóðar, sem málaleitanirnar eru komnar frá, er hjer ekki til hagsmuna fyrir okkur, heldur til að styðja að samkepni við okkur í öðrum aðalatvinnuvegi okkar, sjávarútveginum.
Ef veita á þessa undanþágu, þá get jeg ekki sjeð, hvað það á að þýða að fyrirskrifa ræðismönnunum hvað mikið þeir mega drekka, eða hvaða víns þeir megi neyta.
Það vantar reyndar ekki hjer, að það sje nokkuð, sem þeir mega drekka af þessu rauðvínsgutli, á 3. pott á dag. Það getur nú samt verið, að sumir vilji heldur snaps eða bjór heldur en þetta rauðvínsgutl, þótt okkar góða franska konsúl þyki það gott. Jeg get ekki sjeð betur, en ef þessir menn geta ekki haldið heilsu hjer, þá verði þeir að biðja stjórn sína að kalla sig heim til þess að bjarga sjer og heimili sínu frá heilsuleysi og uppveslun.
Jeg get vel hugsað mjer, að aðrar þjóðir færu að nota sjer þetta og gera alla vísikonsúla að sendikonsúlum,og þá gætu það orðið nokkrir pottar, sem þyrftu að fá undanþágu frá lögunum. Jeg get hugsað mjer um suma vísikonsúlanna, að þeim þyki hart að búa við lögin, en þeir þurfa þá eigi annað en biðja sína stjórn að gera sig að sendikonsúlum, og þá þarf kanske nýja undanþágu um að mega flytja inn sterkara vin, en hjer er heimilað.
Ekki skal jeg mótmæla því, að við eigum að sýna þeirri þjóð, sem hjer á hlut að máli, alla kurteisi. En kurteisin getur líka gengið of langt, því hún getur borið vott um kotungshátt og of mikla auðmýkt og lítillækkun.
Að því er 2. brtill. snertir, þá finst mjer nokkuð mikið viðhaft, að bæta þessu inn í texta laganna, því svo gæti þá farið, að 10–12 konungar komi til að standa undir lögunum, ef svo færi, að oft þyrfti að breyta lögunum, eins og h. framsm. gerði ráð fyrir. Mjer finst því rjett að fara með þessa breytingu á venjulegan hátt. Jeg álit rjett að lofa lögunum að sýna sig, og vera ekki að káka við að breyta þeim fyr en eftir 1915, er það fer að koma í Ijós, hvernig þau reynast.
Það gæti verið ástæða til að samþykkja 2. brtill., sem sprottin er af dómi, sem var kveðinn upp í sumar. Það er reyndar ekki hætta við slíkum dæmum eftir 1915, og er því minni ástæða til þess að gera þessa breytingu en ella mundi.
Jeg er sannfærður um, að vínið streymir nú í stórum straumum inn í landið, sem það hefði ekki gert, ef sölubann og aðflutningsbann hefðu orðið samferða, eins og lagt var til á þinginu 1911, en þá þótti óhafandi. Þessi tími milli aðflutnings- og sölubannsins er þegar orðinn sannkallaður siðspillingartími fyrir þjóðina.
Minn fyrirvari þýddi þá það, að jeg er á móti báðum brtill. nefndarinnar og á móti 1. gr frv., og þótt frv. falli fyrir það í Nd., þá harma jeg það lítt. Till. minni hlutans er í samræmi við mína skoðun,. og mun jeg því ekki tala frekar um hana. Jeg hef og fengið skýra áskorun frá mínum kjósendum um, að lögunum verði ekki breytt á þessu þingi.