06.09.1913
Efri deild: 48. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í B-deild Alþingistíðinda. (2194)
86. mál, aðflutningsbann á áfengi
Guðm. Björnsson:
Jeg skal ekki blanda mjer í umræðnr þær, er fallið hafa hjer um bannlögin í heild sinni, en halda mjer við frumv. það, er hjer liggur fyrir.
Þó get jeg ekki stillt mig um, að taka það fram, að um það leyti, sem þingið var að samþykkja bannlögin, þá voru andbanningar að gera sjer vonir um, að aðrar þjóðir mundu rísa á móti þeim og með valdi koma því til vegar, að hans hátign konungur vor synjaði þeim staðfestingar. Jeg hygg, að fleiri kunnugir menn muni muna það. En það reyndist nú svo, að konungurinn undirritaði þau, og hann sagðist, ef jeg man rjett, gera það með mikilli ánægju.
Og jeg get vel skilið það, að Frakkar sjeu ekki á móti því, að við hjer á enda veraldar fáum bannlög. Mjer er kunnugt um það, að engin þjóð er eins þungt haldin af áfengisnauð og Frakkar, svo að allir merkir læknar og þjóðmegunarfræðingar sjá, að svo búið má ekki standa. Jeg veit, að jeg get aldrei gleymt því, sem jeg sá þá sjálfur þegar jeg gekk um sjúkrahúsin í París, þessa mikla og merka bæjar, í hverju sjúkrahúsi sá jeg alstaðar festar upp feiknstórar auglýsingar með afarstóru og greinilegu letri, þar sem lýst var skaðsemi áfengis með svo stórum orðum, að templarar hafa aldrei difið dýpra árinni. En þær voru ekki gefnar út af góðtemplurum, þessar auglýsingar, heldur af stjórninni.
Því skil jeg ósköp vel, að ekki var beitt valdi þessarar miklu þjóðar, eða stjórnar hennar, til þess að bannlög kæmust hjer ekki á.
En nú verður hún aftur fyrir okkur þessi merka þjóð, því nú hefur hún beðið um undanþágu frá bannlögunum fyrir sendiræðismann sinn, og það er sagt, að norski sendiræðismaðurnn hafi líka beðið um hið sama fyrir sig. Jeg hef ekki sjeð beiðni norska ræðismannsins, en jeg veit fyrir víst, að norska stjórnin hefur ekki beðið um það, og jeg er sannfærður um, að við fáum aldrei tilmæli um það úr því landi.
Viðvíkjandi því, er háttv. þm. Ísafj. (S. St.) var að tala um, að ef sendiræðismenn fengju þessa undanþágu, þá hlyti hún líka að ná til venjulegra ræðismanna, eða konsúla, sem þeir eru venjulega kallaðir og þeir eru hjer margir. Það er rjett, að hjer eru margir konsúlar. Þeir eru orðnir svo margir, að það er ekki hægt að þverfóta fyrir þeim. Og ef maður rekst á einhvern mann á götu hjer í Reykjavík og veit ekki hver hann er, en vill gæta allrar kurteisi, já, þá gerir maður rjettast í því að segja: „Með leyfi, hvað heitið þjer, herra konsúll?“ En þar sem háttv. þm. hjelt, að þeir gætu orðið sendiræðismenn þá er það hrein vitleysa. (Júl. Havsteen: Þeir geta ekki orðið sendiræðismenn). Einmitt það, það vissi jeg, þótt jeg sje ekki lögmaður.
Þeir verða að hafa borgararjett (Ráðherra: Innborinna rjett) í því landi, er sendir þá.
Hjer er því spurningin um það, hvernig við eigum að svara málaleitun þessarar miklu þjóðar.
Við vitum, að sendiherrar og sendiræðismenn hafa ýms sjerrjettindi og þau miklu. atkvæðameiri, en þessa undanþágu; þeir eru t. d. undanþegnir tollgreiðslu og sköttum. Þetta eru mikil sjerrjettindi. Vilja menn nú taka þetta af þeim (Sig. Stefánsson: Það er alt annað!) Já — það er annað — og miklu meira, en það, sem hjer er beðið um. Við verður líka að gæta að því, að þeir hafa meiri helgi á sjer en aðrir menn. Hver þjóð hugsar sem svo: Það sem þið gerið sendiræðismanni: mínum, það gerið þið mjer.
Og þessvegna er það, að allar þjóðir heimsins sýna sendiræðismönnum ýtrustu kurteisi í allri umgengni. Og það hefur komið fyrir, að lítilfjörleg ókurteisi við þá hefur haft mjög alvarlegar afleiðingar.
Og nú tek jeg mjer málhvíld, svo þið — h. þm. — getið hugsað um þetta, því þetta er alvarlegt umhugsunarefni fyrir fulltrúa okkar litlu þjóðar.
Við Íslendingar erum því miður óvanir að umgangast sendiræðismenn annara þjóða. Allir mentaðir Íslendingar „kunna að vera með mönnum“, en íslenzka þjóðin kann því miður ekki ennþá að vera með sendiræðismönnum.
Hjer er ekki um neinn yfirgang að ræða af Frakka hálfu. Hjer er um það að ræða, sem okkur er sómi að: Ein stærsta, voldugasta og merkasta þjóð heimsins sendir oss vinsamlega beiðni, og biður oss kurteislega að verða við tilmælum sendiræðismanns hennar.
Við verðum að gæta að, hvað við gerum, hvað af því getur leitt, ef við segjum nei.
Við verðum að gæta að því, að þetta eru kurteisistilmæli frá stórþjóð til smáþjóðar, frá Frökkum til Íslendinga.
Jeg hef átt tal við sendiræðismann Frakka, og sagt honum, að jeg vilji fyrir hvern mun, að honum sje sýnd öll kurteisi. Hann biður um borðvín, sem hann segist ekki geta verið án. Jeg hef spurt hann að því, hvort hann væri ánægður, ef hann fengi þau og ekki annað, og kvað hann já við því. Jeg spurði hann, hversu mikið hann þyrfti um árið, og sagði hann að 600–700 lítrar væri nóg. Við settum svo 800 lítra.
Það er því víst, að hann telur sjer og þjóð sinni sýnd full kurteisi, ef við samþykkjum þetta.
Jeg get ekki stilt mig um, að vekja athygli á því, að það er sagt um okkur templara, að við sjeum öfgamenn, en nú er það komið á daginn, að við erum ekki mestu öfgamennirnir. Nulla regula sine exceptione, engin venja er afbrigðalaus, sögðu Rómverjar og þeir sögðu líka — sú vitra þjóð; Exceptio confirmat regulain. Undantekningin staðfestir regluna.
Við templarar viljum vinna þjóðinni gagn, en viljum gæta þess um leið, að gera henni ekki mein, og þess á hver maður að gæta, að aldrei hljótist neitt mein af því. sem hann er að gera, heldur aðeins gagn.
H. ráðherra tók það fram, að mjer skildist, að hjer væri til þess ætlazt, að sendiræðismenn, yrðu undanþegnir bannlögunum. En það er ekki rjett. Lögin banna, að flytja, selja, veita og gefa áfengi; jeg efast ekki um, að h. ráðherra hefur aldrei ætlazt til, að sendiræðismenn mættu selja áfengi.
En þó að jeg megi ekki fara að tala um bannlögin í heild sinni, þá var það þó eitt í ræðu hæstv. ráðherra, sem jeg festi mjer í minni og mun ekki gleyma, hann sagði: að hann vildi af öllum huga styrkja þessi lög, ef þau gætu útrýmt drykkjuskap — en kveðst ekki hafa trú á því, að þau gerðu það.
En jeg hef þá trú og vona, að h. ráðherra fái að lifa það, að bannlögin komi að fullum, tilætluðum notum.
Við höfum oft óskað þess, að við kæmumst sem mest í bein viðskifti við aðrar þjóðir. Þá verðum við að læra að umgangast sendiræðismenn, og sýna þeim hina mestu kurteisi, og vera varkárir í allri framkomu vorri við þá. Og við megum ekki byrja á því, að móðga þá. Við megum ekkert eiga á hættu í því efni, allra sízt þar sem ein voldugasta og merkasta þjóð heimsins á hlut að máli.
Menn verða að gera sjer ljóst, að þessi hlið málsins er miklu stærri og þýðingarmeiri en sú, sem veit að bannlögunum.