06.09.1913
Efri deild: 48. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (2207)

75. mál, landssjóður leggi Landsbankanum til 100 þúsund

Guðmundur Björnsson:

Að eins örstutta athugasemd.

Mjer er ekki liðin úr minni nóttin, sem leið. Það var borið upp til atkvæða hjer í deildinni hvort veita skyldi einni sýslu 14 þús. kr. lán til að kaupa jörð fyrir læknissetri, sjúkrahúsi og jafnvel unglingaskóla síðar meir, en háttv. deild sá sjer ekki fært að veita þetta lán til þessa nauðsynja fyrirtækis.

Nóttin er liðin. Dagurinn er kominn. Nú er talað um að veita 100 þús. kr. lán á ári í 20 ár? Hverjum á að lána? Landsbankanum ! Og hvernig ætlar Landsbankinn að verja því ? Það vitum við ekki, hvort hann ætlar að verja því til víxillána, fasteignalána eða ábyrgðarlána, til þarfra eða óþarfra lána.

Um þetta vitum við ekkert.

Jeg skil ekki í þessu, botna hreint ekkert í þessu. Ef einhver háttv. þingdeildarmaður gæti skýrt mjer þetta, væri jeg honum þakklátur.

Nú er það, vitum við, ein brýnasta þjóðarnauðsynin, að landssjóður leggi fram 400 þús. kr. til Eimskipafjelags Íslands. Landssjóður á þetta ekki í handbæru fje. Við vitum ekki, hvort hann getur fengið það að láni, það leikur mikill efi á því. Ef lánið fæst ekki, strandar þetta mikla þarfa fyrirtæki. Mjer þykir það því kynlegt, er landssjóður á nú að leggja 100 þús. kr. til Landsbankans; en fje vantar til brýnustu þjóðþarfa og óvíst, að lán fáist til þeirra.