06.09.1913
Efri deild: 48. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (2224)
90. mál, hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar
Steingrímur Jónsson:
Hjer er um stórt fjárspursmál fyrir Iandssjóð að ræða, þar sem bæði er farið fram á, að landssjóður leggi fram fje og gangi í stóra ábyrgð, og álit jeg því sjálfsagt að skipa nefnd í málið. Þó að nú sje mjög áliðið þingtímans, þá ætti nefndin að geta hraðað störfum sínum svo, að málið þrátt fyrir það, komist í gegnum þingið.
Málinu vísað til 2. umr. Samþ. í e. hlj. að skipa 3 manna nefnd og voru þessir kosnir í e. hlj.
Guðm. Björnsson,
Jón Jónatansson,
Júlíus Havsteen.
Í nefndinni var Júlíus Havsteen kosinn formaður og Jón Jónatansson skrifari.