08.09.1913
Efri deild: 49. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í B-deild Alþingistíðinda. (2232)

86. mál, aðflutningsbann á áfengi

Björn Þorláksson:

Mjer þótti það leitt, að h. 1. kgk. var ekki viðstaddur, þegar jeg talaði um þessa fáránlegu tillögu hans, en jeg stend við það enn, að hún sje fáránleg. Jeg verð að taka upp aftur ummæli mín, vegna þess, að h. þm, var ekki viðstaddur. Jeg sagði, að mig furðaði á, að þessi tillaga væri komin frá manni. sem um langt skeið hefði verið yfirmaður lögreglunnar á vissu svæði af landinu, og jeg sagði, að þetta væri að hjálpa ljelegri lögreglu til þess að hafa eitthvað sjer til afsökunar. Það er ekki til neins að bíða eftir hæstarjettardómi í þessu máli, því að hann getur ekki komið fyr en þetta ákvæði er hætt að hafa nokkra þýðingu, og þar að auki hefur ekki heyrzt, að dóminum hafi verið áfrýjað, nje það sje í ráði. H. 1. kgk. sagði, að það ætti ekki við, að setja nýja bót á gamalt fat. Hann þarf ekki að gera sig stóran yfir því, þótt þessi lög hafi reynzt gölluð, því það er ekkert einstakt við þessi lög. Við erum hjer á þingi ávalt að bæta gölluð lög, og því er ekki að furða, þótt það sje einnig gert hjer. Það þýðir ekki að fara fleiri orðum um þetta mál, en jeg mun óhikað greiða atkvæði á móti þessari tillögu, og jeg vona. að allir þeir, sem unna því, að gildandi lögum sje fylgt, og að góðri lögreglu sje haldið uppi í landinu, greiði einnig atkv. á móti þessari fáránlegu og óviturlegu tillögu.