09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1040 í B-deild Alþingistíðinda. (2291)

120. mál, milliþinganefnd í slysfaramálum

Guðjón Guðlaugsson:

Jeg þakka háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) fyrir hina fögru ræðu sína. Það var bæði upplyfting og skemtun að heyra jafn góða og snjalla ræðu og flutta af jafnmiklum áhuga og einlægni fyrir málinu og hún var flutt.

Jeg skil ekki hvernig háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) getur haft trú á því, að hann gagni hinu góða máli sínu á þann hátt, að bera nú fram á þessu þingi tillögu um, að milliþinganefnd sje sett í málið. Jeg tel það sje alt of snemma borið upp. Jeg hef sem sagt enga trú á því, að milliþinganefnd framkvæmi neitt fram yfir það, er háttv. 6. kgk. þm. getur framkvæmt og framkvæmir nú sjálfur. Jeg tel það hneyksli, ef að milliþinganefnd væri valin í þetta mál, án þess að hann ætti sæti í nefndinni. ef hann á annað borð gefur kost á sjer, sem jeg tel líklegt vegna áhuga hans fyrir málinu, enda mundi hann verða aðalmaðurinn eftir sem áður. Og jeg tel, að hann geti ekki fengið neina meðhjálp fyrst um sinn, er honum mætti að gagni koma.

Skýrslur þær, er við höfum haft hjer um, hafa verið óábyggilegar, en við eigum betri og ábyggilegri skýrslur í vændum. Þær skýrslur, er við höfum haft, hefur háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) rannsakað með þeirri alúð og elju, sem hans er vandi, en nú fullkomnast skýrslurnar, og þá fær hann ný meðul í hendur.

Við vitum, hvernig farið hefur með milliþinganefndir þær, er við höfum kosið. Þær hafa haft með höndum verkleg mál er hafa snert hvern mann í þjóðfjelaginu, og þær hafa leyst verk sitt af hendi með alúð og dugnaði, ekkert síður en háttv. flutningsmaður (G. B.), þegar hann er að gera sínar skýrslur.

En hver hefur árangurinn orðið? Að eins kostnaður. Þeir, sem hafa staðið fyrir utan nefndirnar, hafa reynt alt, hvað þeir hafa getað, sumir hverjir, að gera skop að skýrslum þeirra og starfi, og illgjarnir menn hafa hent skopið á lofti og bætt við lasti og reynt að eyðileggja starfið. Og bað hefur tekizt. Milliþinganefndirnar snúa sjer svo til stjórnarinnar, en þegar því hagar eins til og nú, að alt deyr, sem stjórnin hefur með höndum þá tel jeg það vera skaða fyrir málið að fara þá leiðina. Það er miklu betra, að það komi beina leið frá háttv. þm. Jeg hygg því bezt, að það kæmi frá þeim, er hafa áhuga fyrir málinu. Og þó að milliþinganefnd yrði skipuð, þá held jeg, að það hefði ekki meiri árangur, en þó að stjórnin fengi háttvirtan 6. kgk. til að undirbúa málið.

Hitt atriði þingsályktunartillögunnar um slysin sje jeg ekki annað en að hægt sje að gera án milliþinganefndar. Jeg sje ekki annað, en að það sje nóg að skora á stjórnina að undirbúa frumvarp þetta, og hún mundi þá fara til þeirra manna, er mest hafa kynt sjer málið og hafa mesta þekingu á því, til þess að fá aðstuð þeirra, svo frumvarpið yrði vel úr garði gert. Jeg get því ekki sjeð, að það yrði neitt gagn af því, að setja milliþinganefnd í þetta mál; jeg held, að það yrði bezt og heppilegast, að háttv. 6. kgk. þm. (G. B.) haldi áfram að starfa fyrir það eins og hann hefur gert, en hitt er annað mál, að mjer finst það vera með öllu ótilhlýðilegt að heimta af honum, að hann vinni að þessu máli fyrir ekki neitt. Mjer finst það vera rjettast, að veita stjórninni fje á fjárIögunum; til þess að rannsaka þetta efni, án þess að það sje kallað milliþinganefnd. Það er beinast og rjettast.

Undir ummæli háttv. 2. kgk. þm. (E. B.l um orðun þingsályktunartillögunnar hlýt jeg að taka. Mjer finst það vera sjálfsagt, að lagfæra það, ef að tillagan á að fara í lengra en þetta. Jeg verð að játa það, að þótt jeg viðurkenni ekki, að háttv. neðri deild standi að neinu leyti framar eða ofar en háttv. efri deild, þá gerir hún það þó f fjármálum. Hún sje þar aðaldeildin. En það, að setja á fót milliþinganefnd, kostar 2–3 þúsund kr. að minsta kosti. og því er hjer um fjárveitinh að ræða, og þá er venja, að alþingi taki slíka ákvörðun, eða báðar deildir rjettara sagt. Og þó við hjer settum inn á fjárlögin tillögu um að veita fje í þessu skyni, þá er alveg óvíst, að háttv. neðri deild samþykti það, eða það næði framgangi í sameinuðu þingi.

Jeg skal játa það, að jeg er í vandræðum með atkvæði mitt í þessu máli, mjer er ógeðfelt að vera á móti því, en þó held jeg, að jen verði það, því jeg sje ekki, að milliþinganefndin komi að tilætluðu gagni.