09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (2292)

120. mál, milliþinganefnd í slysfaramálum

Guðm. Björnsson, framsm.:

Jeg get verið stuttorður.

Jeg er þakklátur þeim, er hafa tekið til máls, fyrir hin vinsamlegu ummæli í minn garð.

Jeg skal taka það fram, að það var ætlun mín, að ef þessi tillaga næði samþykki háttv. deildar, að þá væri borin fram í háttv. neðri deild samhljóða tillaga þeirri tillögu, er hjer liggur fyrir nú.

Hvað fjárveitingunni viðvíkur, þá aðgætti jeg það mál, og komst að raun um, að milliþinganefndir hafa verðið skipaðar, án þess að fje hafi verið veitt til þeirra á fjárlögunum. Svo að það er ekki ástæða, að hafa á móti þessari þingsályktun fyrir þá sök. Og jeg ætlaðist heldur ekki til, að hún kæmi til framkvæmda, nema því að eins að hún yrði líka samþykt í háttv. neðri deild.

Mjer er engin launung á því, að jeg veit miklu meira um sjómennina, skipabrestina og orsakir slysfaranna — miklu meira en jeg hef látið uppi.

Jeg hef líka komizt að raun um það, að manntjón Frakka hjer við land hefur verið að tilölu minna, en manntjónið á íslenzku skipunum. Jeg hef fengið mjer fræðslu þar að lútandi frá Frökkum sjálfum, Og beztu vitneskjuna um slysfarir hjer hef jeg ekki haft úr landshagsskýrslunum, heldur úr blöðum og tímaritum; hef þó ekki unnið til fullnustu úr þeim fróðleik, sem þangað er að sækja. Til þess að fá sem sannastan fróðleik um manndauða af slysförum, lagði stjórnin eftir tilmælum mínum fyrir þingið frv. til laga um mannskaðaskýrslur og rannsókn á fundnum líkum, og er það nú orðið að lögum.

En málið er svo alvarlegt, að það má ekki bíða. Jeg get ekki hugsað til þess. Jeg er læknir, og ef jeg sje, að jeg get bætt mein sjúklings, þá get jeg ekki fengið af mjer að bíða — það getur enginn læknir. Háttv. þm. Strand. (G. G.) sagði, að millaþinganefnd mundi ekki geta unnið öllu meira í málinu en jeg einn. Sannleikurinn er sá, að jeg er kominn í sjálfheldu í þessu máli, fullkomna sjálfheldu, og kemst ekki úr henni, kemst ekki lengra áleiðis af eigin rammleik, einn míns liðs, og án nokkurs umboðs frá þingi og stjórn. Málið hefur líka svo margar hliðar, að enginn einn maður getur greitt úr öllum flækjunum. Og það er síður en svo, að allar nauðsynlegar upplýsingar verði fengnar úr opinberum skýrslum. Hjer þyrfti að taka upp sömu aðferðina, sem milliþinganefndir í Englandi hafa til að afla sjer sannfróðleiks. Þær snúa sjer til þjóðarinnar sjálfrar. Hver, sem sannfróðleik vill fá um slík efni sem þetta, hann verður að yfirheyra þjóðina sjálfa eiga tal við alla, sem bezt til þekkja; það hef jeg gert í smáum stíl; jeg hef átt tal við marga góða sjómenn og fengið þar marga sorglega vitneskju og svo átakanlega, að enginn getur leyft sjer frá að segja, nema hann hafi umboð til að rannsaka það mál.

Hin hlið málsins er slysatryggingin. Það er mjög vandasamt atriði og margbrotið. Háttv. þm. Strand. (G. G.), sagði, að stjórnin gæti vísað öllu þessu máli til mín. Það er satt, að milliþinganefndir hafa verið skipaðar til að undirbúa löggjöfina í öllum stórmálum þjóðarinnar, nema heilbrigðismálunum. Við þau hef jeg fengið að bisast einsamall nú um stund. Jeg tel það ekki eftir mjer.

En jeg er, eins og jeg sagði, kominn í sjálfheldu í þessu slysfaramáli, og því leita jeg til þingsins. Það er ekki í launaskyni.

Háttv. deild veit það vel, að jeg hef búið mörg mál til þings undanfarin ár, frá því fyrir aldamótin, og þar á meðal ýms mikil vandamál, og lagt mikla vinnu í þau, og engin sjerstök laun fengið fyrir — eins og milliþingauefndirnar — aldrei mælzt til þess. Þjóðin á sjer enga viðreisnar von, ef enginn vill gera neitt fyrir hana, nema móti borgun út í hönd.

Nú beiðist jeg þess eins, að þetta mál sje ekki vanrækt, ekki látið dragast. Mörg góð mál þola bið. En því meir sem jeg hef fengizt við þetta mál, því betur hefur mjer skilizt, að biðin getur hjer kostað mörg mannslíf.

Hjer er um líf manna að tefla. Þess vegna skil jeg ekki, að neinn vilji una því, að bíða, bíða og sjá, hvað margir farast, bíða og gera ekki neitt.