09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)
58. mál, hvalveiðamenn
Ráðherra:
Það er að eins lítil spurning, sem mig langar til að beina til háttv. nefndar. Eins og háttv. framsm. (S. St.) gat um, hefur háttv. nefnd sent fyrir skömmu með símskeyti fyrirspurn gegnum norska ræðismanninn hjer til stjórnarinnar í Noregi.
Eins og orðin liggja fyrir í nefndarálitinu, þar sem frá þessu er skýrt, lítur helzt út fyrir, að fyrirspurnin hafi verið um það eitt, hvort skaðabótakröfur hafi komið fram fyrir atvinnuspjöll. En hjer geta líka komið til greina, að jeg hygg, skaðabótakröfur fyrir eignarrýrnun,. sbr. 50. gr. stjórnarskrárinnar. Og þó lögfræðisdeild háskólans í Kristjaníu hafi látið það álit í ljós, að ekki væri, líklegt, að hvalveiðamennirnir gætu fengið skaðabætur fyrir atvinnuspjöll, þá er því ósvarað, hvort hægt sje að komast hjá að greiða skaðabætur fyrir eignarýrnun, og ekki víst, að svarið hefði orðið hið sama. Það er því lítið á þessu svari háskólans norska að byggja, þegar er að ræða um það spursmál, sem hjer liggur fyrir.
Þótt nú sje orðið litið um hvalveiði hjer við land, og hún borgi sig illa, þá eiga hvalveiðamennirnir hjer þó all mikil hús og tæki, sem ekki eru notuð til annars, en hagnýtingar hvalafurða, og eru sjálfsagt bundnir lóðarsamningum um alllangan tíma, og verður að borga eftir þessar lóðir, hvort sem þær gefa þeim nokkurn arð eða ekki.
Það er auðsætt, að þessar eignir þeirra rýrna í verði, ef þeim er bönnuð með lögum atvinna, sem hæglega getur batnað aftur, þótt hún sje arðlítil í bráð. Jeg er því hræddur um, að hvalveiðamennirnir geri skaðabótakröfu fyrir eignarýrnun, og finst valt að treysta því, að dómstólarnir gefi þeim ekki meðhald.
Af því hvalveiðamennirnir sýnast nú vera á förum, þá finst mjer rjettara að bíða með bannlög þessi, þangað til þeir eru allir farnir, og sæta þá færi, að koma þeim á, þegar ekkert er í hættu. Þeir hvalir, sem nú eru hagnýttir hjer á hvalastöðvum, eru hvort sem er veiddir langt norður í höfum en ekki hjer við land, og því ekki líklegt, að hvölum fjölgi mikið hjer við land fyrst um sinn, og það þarf ekki að gera ráð fyrir því, að höfin fyllist af hvölum á 10 árum. það þarf lengri tíma til þess.
Hvaða þýðing sem hvalafriðunin kann að hafa, þá ættum vjer af fjárhagslegum ástæðum að bíða um stund með hana, til þess að eiga ekki á hættu, að þurfa að borga dýrum dómum úr Iandssjóði hús hvalveiðamanna.
Lögin geta gefið þeim hvöt til að halda húsum sínum við hjer, þangað til þau koma í gildi, þótt þeir annars hefðu horfið fyrri burtu hjeðan, og gera síðan skaðabótakröfur til landssjóðs.
Ef það hefur skýrt verið tekið fram í fyrirspurninni, að líka væri átt við húsin, þá álít jeg, að nokkuð mætti ef til vill á því byggja, að ekkert svar hefur komið.
Ef norska stjórnin hefði orðið að borga hvalveiðamönnunum fje fyrir það, sem um var spurt, þá tel jeg víst, að svar væri komið frá henni; og er það þó nokkuð undir því komið, hvort beinlinis hefur verið beðið um síma svar, því að ella gæti brjef verið á leiðinni.