09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1053 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)

58. mál, hvalveiðamenn

Sigurður Eggerz:

Ástæðan til, að jeg stend upp, er sú, að jeg vil skýra frá efni símskeytisins, sem við afhentum norska ræðismanninum. Í því var spurt um, hvort hvalveiðamenn í Noregi hefðu fengið nokkrar skaðabætur vegna hvalafriðunarinnar og sjerstaklega var spurt um, hvort skaðabætur hefðu fengizt fyrir húsrof. Eins og háttv. framsögum. tók fram, er ekkert svar komið, en hvort það þýðir það, að engar skaðabætur hafi verið látnar af hendi, veit jeg ekki.

Hjer virðist geta verið um stórkostlegan atvinnuveg að ræða í framtíðinni fyrir landið, ef hvalir eru friðaðir og legðust aftur að landinu, og það gæti orðið meira virði en þessar litlu tekjur, sem við höfum samkvæmt núgildandi lögum af útfluttum hvalaafurðum. En jeg vil benda á, að það er mikið vafamál, hvort hvalveiðamennirnir hafa leyfi til eftir núgildandi lögum, að reka hjer veiðar sínar á þann hátt, sem þeir gera. Það er bannað, að reka þessa veiði í landhelgi, eða nota landhelgina á nokkurn hátt við hana. Og þá getur verið vafi, hvort þeir mega einu sinni draga veidda hvali inn í gegn um landhelgina. Jeg bendi einungis á þetta, þar eð jeg álit það vafasamt, og krefðust hvalveiðamennirnir skaðabóta, yrði þetta vitanlega tekið til athugunar.

Annars get jeg ekki ímyndað mjer, að Norðmenn taki hvalafriðuninni illa, því við gerum ekki annað í þessu efni, en þeir sjálfir hafa gert heima hjá sjer, við höfum tekið þá hjer til fyrirmyndar.