09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1056 í B-deild Alþingistíðinda. (2309)
38. mál, stjórnarskipunarlög
Björn Þorláksson:
Jeg mótmæli því, að málið sje tekið út af dagskrá og frestað til næsta dags. Hjer er ekki nema um tvent að velja. Annað hvort er að samþykkja málið án allra breytinga eða láta það ekki ganga fram. Það er suðsætt, að breytingartillögur geta ekki orðið til annars en spilla fyrir framgangi frv. og gera því skaða. Mjer var hugur á að fá málið tekið á dagskrá í dag, því að verið getur, að jeg biðji um leyfi forseta til að fara burt úr bænum, en jeg vildi ekki fára, fyr en jeg hefði sjeð málinu borgið; jeg hef heitið því fylgi mínu, og jeg ætla mjer ekki að hlaupa frá því, þótt sumum háttv. þm. kunni að verða það á, að hlaupa frá málum, sem sem þeir hafa heitið fylgi sínu.