09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (2311)
38. mál, stjórnarskipunarlög
Sigurður Eggerz:
Mjer kemur á óvart, er nefndinni er borið á brýn, að hún hafi dregið málið. Nefndin hefur í rauninni ekki haft, það nema 2 daga til meðferðar, því að fjárlögin hafa verið til umræðu, eins og allir vita. Nefndarálitið er skrifað á örstuttum tíma. Annars skoða jeg þetta bragð háttv. þm. Ísaf. ekki annað en bragð til að hefta framgang málsins og beina árás á það.