09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1058 í B-deild Alþingistíðinda. (2318)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Sigurður Eggerz, framsögumaður:

Í umræðunum um að taka þetta mál út af dagskrá hjer í dag sakaði háttv. þingm. Ísafjarðar nefndina um, að hún hefði dregið málið á langinn. Þessu vil jeg leyfa mjer að mótmæla og skal benda á, að hún fjekk málið til meðferðar fyrst fimtudaginn 4. sept. og að þingfundi loknum þann dag hjelt hún þegar fund um málið og annan fund um morguninn eftir á föstudaginn. Þann dag voru fjárlögin til 2. umræðu, og stóð þá fundur langt fram á nótt en á laugardaginn afhenti nefndin álit sitt til prentunar. Af þessu hljóta menn að sjá, að nefndin hefur hraðað málinu eins og unt var. Jeg segi þetta einungis til þess að sýna fram á, að nefndin hefur gert skyldu sína, og jég mun líta svo á, að ummæli hins háttv. þingmanns hafi verið í bræði töluð og mun jeg fúslega fyrirgefa honum þau. Eins og sjá má á nefndarálitinu, hefur nefndin lagt það til, að frumvarpið verði samþykt óbreytt, og eru ástæður nefndarinnar til þess þær, að hún telur meginatriðum málsins svo fyrir komið, að vel megi við una. Að vísu er henni fullljóst, að ýms atriði ættu að vera á aðra leið, en gert er ráð fyrir, en hún lítur svo á, að meginatriðunum sje svo vel fyrir komið, að sjálfsagt sje að samþykkja frumv. Og það mun sannast, að erfitt verður að gera stjórnarskrána svo úr garði, að allir verði fullkomlega ánægðir með hana í öllum greinum. Jeg skal svo víkja að frumvarpinu og get lofað því að halda ekki langa framsöguræðu að þessu sinni.

Þess má þá fyrst geta að það eru viss atriði, sem allri þjóðinni að kalla má kemur saman um, og er það í 1. lagi afnám konungkjörinna þingmanna, og í 2. lagi aukning kosningarrjettarins. Að því, er fyrra atriðið snertir, þá er það ljóst, að á meðan konungkjörnir þingmenn eiga sæti á alþingi, getur vilji þjóðarinnar ekki komið þar eins ljóst fram og skyldi. Upphaflega var meiningin með konungkjörnu þingmönnunum sú, að tryggja sjer menn með sjerþekkingu í þinginu. Nú er kosningin eingöngu pólitísk. Ráðherra kýs fylgismenn sína í þau sæti. En það er hart að verða að taka tillit til þeirra konungkjörnu, þegar um þingræði er að tala, en á meðan þeir sitja á alþingi, verður að taka tillit til þeirra, því það verður að teljast aðaleinkenni þingræðisins, að sú stjórn, sem situr að völdum, geti komið áhugamálum sínum fram á þinginu. Geti hún það ekki, þá er þingræðið veiklað. En þótt hún hafi meirihluta þjóðkjörinna þingmanna með sjer, getur hún ef til vill ekki komið málum sínum fram, ef þeir konungkjörnu snúast á móti. Jeg ætla svo ekki að fara fleiri orðum um konungkjörnu þingmennina, því að allir eru sammála um, að þá beri að afnema. En þótt menn sjeu á einu máli um þetta, þá hefur menn hinsvegar greint allmikið á um, hvernig skipa beri efri deild, þegar þeir eru úr sögunni, og menn hafa sett þetta atriði í samband við rýmkun kosningarrjettarins, þannig að ef hann verði rýmkaður, þurfi að fá nokkra stöðvun í efri deild. í því frumvarpi, sem hjer liggur fyrir, er viðurkendur almennur kosningarrjettur. Sú skoðun er meir og meir að ryðja sjer til rúms úti um heim, að konur eigi að fá kosningarrjett. Eins og kunnugt er, hafa kvennrjettindakonur á Englandi gert mikið til þess að afla sjer þessa rjettar og í grundvallarlagafrumvarpi því, sem nú er á döfinni í Danmörku, er konum ætlaður kosningarrjettur. Í þessu frumvarpi, sem hjer liggur fyrir, er konum ætlaður kosningarrjettur sem körlum,. og er þá sá misrjettur, sem þær hafa átt við að búa, í þessu efni afnuminn. Um hitt hefur verið meiri ágreiningur, hvort. rjett væri að veita vinnumönnum kosningarrjett, en hjer er hann veittur þeim í principinu. Jeg get ekki sjeð neina ástæðu til þess að svifta nokkra stjett í landinu þessum rjetti, því með því er stutt að stjettamismuninum, sem jeg álít að ekki eigi að eiga sjer stað. Það hefur verið borið fram sem ástæða móti því að veita konum kosningarrjett, að þær legðu svo litla áherzlu á hann sjálfar. Það er satt, að þær leggja ekki eins mikla áherzlu á hann, sem skyldi, en jeg lit samt svo á, að það sje skylda þingsins að veita þeim þennan rjett. Það er þó einn annmarki á þessu fyrirkomulagi, og hann er sá, að þó almennur kosningarrjettur sje viðurkendur í principinu, þá fá ekki allir hann að fullu fyrri en eftir 15 ár. Jeg hefði álitið rjettast að veita kosningarrjettinn strax, en samt lít jeg svo á, að þessi annmarki sje ekki svo mikill, að stjórnarskráin eigi ekki samt sem áður að fá framgang, því að því lengur sem dregst að breyta stjórnarskránni, því lengur verða þessir menn að bíða hvort sem er eftir rjetti sínum. Svo ætla jeg ekki að tala meira um kosningarrjettinn að sinni.

Skipun efri deildar er samkvæmt þessu frv. þannig fyrirkomið, að í henni eigi sæti 6 menn, kosnir , hlutfallskosningum um alt land, og koma þeir í staðinn fyrir þá konungkjörnu, og 8 menn, sem sameinað alþingi kýs á sama hátt og nú. Þingrof nær ekki til þeirra hlutfallskosnu og kosningarrjettur við þær kosningar er bundinn við 35 ár. Jeg verð að líta svo á, að með þessu fáist nægileg stöðvun í efri deild, og mjer virðist jafnvel með öllu óþarft að binda kosningarrjettinn við hlutfallskosningarnar við 35 ár. Hjer er þó meginatriðunurn komið fyrir á þann hátt, að telja má viðunanlegt, og eitt er hjer, sem mjer þykir miklu skifta, og það er, að eigi þarf að breyta kjördæmaskipun landsins, en það mundi valda allmiklum erfiðleikum.

Þá er nefndin samdóma háttv. Nd. um það, að eigi sje rjett að fastákveða í stjórnarskránni, að sjermál Íslands skuli borin upp í ríkisráði Dana, og getur hún felt sig við, að konungur ákveði, hvar málin skuli borin upp. Sú ákvörðun verður suðvitað gerð á ábyrgð Íslandsráðherra, eins og gefur að skilja. Þá er og ákveðið, að tölu ráðherra megi breyta með lögum. Jeg hefði að vísu álitið heppilegra, að ráðherrum hefði þegar verið fjölgað, því jeg hygg, að mikið mundi vinnast við að hafa 3 ráðherra. Að vísu mundi það hafa nokkurn aukinn kostnað í för með sjer, en það er líka þess að gæta, að þá er meiri trygging fyrir því, að málin sjeu vel íhuguð af mönnum, sem hafa ábyrgð á gjörðum sínum. Eins og nú stendur, er það ómögulegt fyrir ráðherra, að fara yfir öll mál, sem hann þarf að ráða fram úr, og verður hann því að láta ábyrgðarlaust skrifstofuvald ráða fram úr ýmsum málum.

Þetta er óholt, enda hart fyrir ráðherra, að verða að bera ábyrgð á verkum, sem hann getur ekki vegna fjærveru eða annara ástæðna, vitað neitt um. En þar sem gert er ráð fyrir því í frv. þessu, að tölu ráðherra megi breyta með lögum, þá er það ákvæði viðunandi, og til bóta frá því sem nú er. Þá er eitt nýtt ákvæði um, að halda skuli aukaþing, ef meiri hluti hvorrar deildar krefst þess. Þetta ákvæði álít jeg mjög heppilegt, því ef ráðherra fer illa með vald sitt, eru engin tök á að losna við hann á milli þinga, eins og nú er ástatt, en hjer er sett ráð til þess. Þá er og ákvæði um, að alþingi skuli kjósa 3 yfirskoðunarmenn og með hlutfallskosningu. Það er auðsætt, að áríðandi er að yfirskoðun landsreikninganna sje sem tryggust, og er sjeð um það með þessu ákvæði. Þá er það og sett að skilyrði fyrir kjörgengi, að menn sjeu búsettir innanlands. Það má að sjálfsögðu deila um þetta atriði, og um það var nokkur ágreiningur í nefndinni, en mjer finst það eðlilegt skilyrði. Ennfremur er nýtt ákvæði um, að dómarar, sem ekki hafa að auki umboðsstarf á hendi, skuli ekki kjörgengir til alþingis. Það er kunnugt, að víða út um land er því haldið fram, að þessir menn eigi ekki að verða kjörgengir vegna þess, að þeir eigi ekki að vera riðnir við stjórnmál, til þess að traustið á landsyfirrjettinum, því hjer er aðallega um hann að ræða, raskaðist ekki af þeim sökum. En þetta virðist mjer ekki nóg ástæða til þess, að útiloka þessa menn frá kjörgengi, enda gagnstætt þeirri öldu, sem nú er að renna, að veita sem flestum kosningarrjett og kjörgengi. Þess ber og að gæta, að þó menn ekki sitji á þingi, geta þeir á ýmsan hátt fengizt við „pólitík“, og slíkt er þó ekki hægt að banna. Ekki geri jeg þó svo mikið úr þessu, að jeg verði andstæður stjórnarskrárbreytingunni fyrir þá sök. Þess má geta, að allir nefndarmenn voru andstæðir þessu ákvæði. Þá er ennfrem nýtt ákvæði um, að samþykki alþingi breytingu á sambandinu milli Íslands og Danmerkur, þá skuli það mál lagt undir atkvæði allra kosningarbærra manna til samþyktar eða synjunar. Um þetta ákvæði var nokkur ágreiningur í nefndinni, en jeg lít svo á, að það sje til stórbóta. Það skiftir miklu, að slíku máli sje ráðið vel til lykta, og að engu flanað, og er því nauðsynlegt að hafa ákvæði, sem þetta í stjórnarskránni. Enn er eitt ákvæði um, að sambandinu milli ríkis og kirkju megi slíta með lögum. Alda í þessa átt er mjög rík hjá þjóðinni, og má því hjer eftir gera þetta án stjórnarskrárbreytingar, með einföldum lögum.

Í 18. gr. er nýtt ákvæði um, að maður, sem ekki er í þjóðkirkjunni nje öðrum trúarbragðaflokki, skuli gjalda til háskóla Íslands eða einhvers styrktarsjóðs við þann skóla, í stað þess að nú verður slíkur maður að greiða gjöld til þjóðkirkjnnnar.

Það má vera, að jeg hafi gleymt að minnast á eitthvað nýtt ákvæði í þessu frumvarpi, og mun jeg þá gera það síðar, ef umræðurnar gefa tilefni til þess. Jeg vænti þess, að máli þessu verði tekið vel í háttv. deild. Eins og kunnugt er, eru raddir háværar hjá þjóðinni um að fá stjórnarskrárbreytinguna á þessu þingi, og þar sem málið virðist nú komið í sæmilegt horf, vona jeg, að deildin samþykki frumvarpið óbreytt, því að breyta frumvarpinu, er sama og að stytta því aldur.