09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (2323)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Sig. Eggerz, framsm.:

Það var eitt atriði, er h. þm. Ísf. lagði mikla áherzlu á og mjer gleymdist að svara. Það var um kjörgengisrjettarskilyrðið. Hann lagði áherzlu á, að innborningsrjettur væri skilyrðið. En hann hefur ekki athugað, hvernig þetta er í núverandi stjórnarskrá. Samkv. 18. gr. stjórnarskrárinnar er nóg, að þeir hafi síðustu 5 ár verið í löndum þeim í Norðurálfunni, er liggja undir veldi Danakonungs. Þetta ákvæði er því miklu íslenzkara en núgildandi ákvæði. Nú er nóg, að þeir hafi síðustu 5 ár verið t. d. í Grænlandi. Eftir þessu verða þeir að hafa átt lögheimili hjer á landi síðustu 6 árin. Frá sjónarmiði h, þm. Ísf (S. St.) er ákvæði frv. því betra, en ákvæði stjórnarskrárinnar. Og mjer sýnist ákvæði frv. sanngjarnt. Þá er þeir hafa dvalið hjer svo lengi, eru þeir orðnir bundnir ýmsum böndum við löndin. Jeg sje því enga ástæðu til að breyta þessu ákvæði.

Þá er jeg heyrði ræðu h. þm. Strand. (G. G.), lá mjer við að biðja guð að varðveita mig fyrir vinum mínum, því að „krítik“ hans á frv. var æðimikil. En þar sem hann ætlar alt fyrir það að greiða frumv. atkvæði, skal jeg ekki svara honum mjög miklu.

Þar sem h. þm. vildi gera peningaeign að skilyrði kosningarrjettar, er jeg honum ósammála. Að setja einhver prófskilyrði fyrir honum, tel jeg of umsvifamikið og óeðlilegt. Auðvitað er það æskilegt, að kjósendur öðlist þann þroska, að þeir verði sem allra færastir að beita kosningarrjetti sínum. En afleiðingin af rýmkun kosningarrjettarins er sú, að koma þarf fræðslumálum landsins í sem allra bezt horf, verður að leggja enn meiri áherzlu á þau en áður. Þar sem hann talaði um kosningarrjett kvenna og 7 andanna, get jeg heldur ekki verið honum samþykkur. Jeg álit, að enginn stjettamunur eigi að eiga sjer stað, sízt Iögskipaður. Ef vinnuhjú gegna starfi sínu vel og skipa stóðu sína með sæmd, þá fæ jeg ekki sjeð annað, en að þau eigi skilið, að þjóðfjelagið veiti: þeim þennan rjett.

Að því er snertir heimilisfestuna sem skilyrði fyrir kjörgengi, þá tel jeg slíkt rjettmætt. Jeg skal játa, að dæmi Jóns Sigurðssonar mælir ekki með því. En þau dæmi eru svo fá, að það er ekki hægt að miða við það í löggjöfinni.

Jeg get heldur ekki tekið undir ummæli h. þm. Strand. um ríkisráðsákvæðið. Það er ekki í frv, að neinu leyti hopað frá því, að það eigi ekki að bera málin þar upp. 11. gr. frv. segir, að lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir skuli bornar þar upp, er konungur ákveður. Við vitum ekki, hvar konungur ákveður, að það verði. Jeg sje því ekki neinn hag í þessu.

Þá fór h. þm. Strand. hörðum orðum um það nýmæli, að breytingar á sambandinu milli Íslands og Danmerkur skyldu bornar undir atkvæði allra kjósenda í landinu. Hjer er jeg honum mjög ósammála og ummæli hans um þroska kjósenda voru næsta óviðeigandi. Þess verður að gæta, að fyrir utan þennan sal er fjöldi manna, sem hafa eins vel vit á stjórnmálum og þingmenn sjálfir. Hann óttaðist, að æsingar meðal kjósenda mundi verða góðum breytingarákvæðum að falli. En það geta komið upp æsingar á þingi og mál orðið afgreitt í flaustri og flýti á einu þingi. Það er einmitt mjög hættulegt, að hægt skuli vera að ráða málum til lykta á einu þingi. Stjórnarskrárbreyting verður ekki leidd til lykta á minna en 2 þingum, og mjer finst einsætt, að ekki ólík tryggingarákvæði verði sett um breytingar á sambandi Íslands og Danmerkur. Jeg tel, petta eitthvert allra bezta nýmælið í frv., og meðal annars þessvegna er jeg frv. mjög fylgjandi.

H. ráðherra áleit, að sambandsmálið ælti að ganga á undan þessu máli (Ráðh.: Nei, það var ekki meining mín). Það gleður mig. Horfur í sambandsmálinu eru Ekki heldur svo vænlegar. Það yrði og að líða lengi, ef ætti að bíða þess, að Danir sintu kröfum okkar í sambandsmálinu. Í því máli verður aðeins að setja markið hátt, slaka ekki á kröfunum, en halda því jafnt og þjett í horfinu.